Skagfirðingabók - 01.01.2002, Page 15
ATHAFNASKÁLD í SKAGAFIRÐI
landshornum, sem áttu leið um Skagafjörð á þessum árum,
hafa haft á því orð við þáttarhöfund, hversu þeim hafi þótt
þetta blómlega og fagra hérað bera því vitni, að enda þótt
Skagfirðingar væru góðir heim að sækja og ræktu vel sinn róm-
aða menningararf hvað varðar mannleg samskipti og glaðværð,
væru þeir fráleitt að sama skapi metnaðarfullir í búskaparhátt-
um. Þar virtist allt umhverfi mannlífs og fénaðar í sveitum lít-
ið breytt frá tímum þjóðveldis. Flest benti til að þarna hefðu
Skagfirðingar að nokkru farið offari í varðveislu sögulegra
minja. Straumar nýrra tíma höfðu ekki að ráði mengað kvíslar
Héraðsvatna þegar hér var komið sögunni.
Mörgum kann ugglaust að þykja framanrituð lýsing á menn-
ingu í Skagfjarðarhéraði þessara daga, óþarflega dapurleg. Þá
hafa ýmsir er um hafa rætt sveigt talið að tómlátri forystu
Kaupfélags Skagfirðinga, sem um langt árabil hafði verið
burðarás framkvæmda, atvinnu og verslunar í héraðinu. Það
væri reyndar marklítil sagnfræði ef gerð væri tilraun í þá veru
að leiða rök til einhverra álykta'na um að kaupfélagið hafi verið
dragbítur á framfarir í héraðinu. Það verður að teljast fremur
ólíklegt að öflugasta verslunar- og þjónustufyrirtæki héraðsins,
sem kaupfélagið var, hafi séð sér hag í að halda aftur af rekstrar-
umhverfi sínu með nokkru móti. En þvf er ekki að leyna að
ýmsir töldu að forystumönnum kaupfélagsins hafi sést yfir
skyldur þess til að leiða bændur og aðra íbúa héraðsins í þeirri
sókn til framfara og umbóta sem aðrar sýslur og þéttbýliskjarn-
ar voru farnar að tileinka sér með aukinni áherslu á nýbygging-
ar úr steinsteypu, sem óneitanlega breyttu ásýnd umhverfis og
gáfu jafnframt þeim sem nutu, nýja og breytta lífssýn ásamt
auknum þægindum og umbótum í þrifnaði.
Allar vangaveltur í þessa veru er líklega rétt að spara sér með
það í huga að hlutverk kaupfélaganna og tilgangur var ekki að
taka frumkvæði úr höndum félagsmanna, heldur að sinna
þeirri þjónustu sem eftir var leitað.
Flestir skagfirskir bændur áttu viðskipti sín við kaupfélagið,
13