Skagfirðingabók - 01.01.2002, Page 29
ATHAFNASKÁLD f SKAGAFIRÐI
við Sigurð, en tilefni þeirra voru vanskil á launagreiðslum til
fiskvinnslufólks samfara ágreiningi um launataxta. Þess má
geta, þótt þess sé hvergi getið í skrifum þessum, að Sigurður
hafði um tíma tekið upp þann sið sem tíðkaður var í áraraðir
hjá K.S., en þá fyrir skemmstu verið lagður af, að greiða laun
með ávísunum á úttekt í verslun hans. (Að vísu mun ávísana-
kerfi kaupfélagsins að mestu leyti hafa varðað innleggsvið-
skipti bænda). Þetta gat auðvitað valdið fólki vandræðum því
hvorttveggja var að flestir höfðu þörf fyrir lausafé umfram dag-
legar neysluþarfir og jafnframt var það svo, að þegar harðast
svarf að hjá Sigurði tók að sneyðast um vöruúrval í búðinni,
auk þess sem þar voru ekki fáanlegar ýmsar nauðþurftir, s.s.
mjólk og mjólkurvörur sem K.S. sá um sölu og dreifingu á.
Það dylst engum að grein Hjálmars er stefnt til háðungar og
vanvirðu Sigurði sem Hjálmar nefnir gjarnan „herra Sigurð
Sigfússon". Þar segir við upphaf: „Arið 1955 tók Hraðfrysti-
stöðin hf. á móti fiski úr nokkrum togurum, og skapaðist við
það nokkur vinna í bænum, en óreiða og vanskil launagreiðslu
Sigurðar Sigfússonar til verkafólks sem hjá honum hafa unnið,
hafa verið með þeim endemum að eindæmi má teljast." Þá get-
ur Hjálmar þess að á árinu 1955 hafi Sigurður greitt verka-
mönnum laun undir taxta og brotið með því kjarasamninga við
verkamenn á Sauðárkróki. Svo langt hafi þetta mál gengið að
stjórn og trúnaðarmannaráð Verkamannafélagsins Fram hafði
skotið á fundi í félagsheimilinu Bifröst, ásamt lögfræðingi ASI,
Jóni Þorsteinssyni, og Sigurði Sigfússyni (þann 13. september,
sbr. fundargerð Verkamannafélagsins Fram). „A þessum fundi
reyndi Sigurður að fá stjórn og trúnaðarmannaráð Vmf. Fram
til þess að samþykkja sem rétt vangoldin vinnulaun og rangar
reikningsfærslur þar að lútandi. En stjórn og trúnaðarmanna-
ráð lýsti því yfir að ekki kæmi til greina að gefa Sigurði Sigfús-
syni það eftir að greiða verkafólki sem hjá honum hafa unnið að
fullu vangoldin vinnulaun og að leiðrétta reikningsfærslur þar
að lútandi." Síðan segir frá því að eftir nokkrar umræður hafi
27