Skagfirðingabók - 01.01.2002, Page 166
SKAGFIRÐINGABÓK
fræðin franska, sem kom út í 28 bindum 1751-72, var bjartur
kyndill hennar.
I einhverjum skilningi eru uppvaxtarár Eldjárns í fjarlægð
annars sólkerfis; enn hafði James Watt ekki byrjað þrotlausa
vinnu sína við endurbætur á gufuvél Newcomens og hér heima
var Skúli Magnússon að brjótast í að koma innréttingunum
upp. En við tökumst líka í hendur við þessa tíma þegar dansk-
ir múrsmiðir klöppuðu steina í veggi stofanna góðu í Viðey,
Nesi og á Bessastöðum. Kantorinn í Tómasarkirkjunni í Leipzig,
Johann Sebastian Bach, var að leggja síðustu hönd á H-moll mess-
una um það bil sem Eldjárn kom í heiminn. Og þegar hann var
að slíta barnsskónum setti uppreisnarmaðurinn Frangois Arou-
et, öðru nafni Voltaire, punktinn aftan við Birting: „II faut
cultiver notre jardin" — maður verður að rækta garðinn sinn.
Svírahausinn gnæfir yfir Auðbrekku og skýtur ömmudreng
skelk í bringu. Hvert mannsbarn í sveitinni veit að hann hryn-
ur fram þegar sá dagur rennur að öll bæjartorfan kemst í eigu
eins manns; guð lofí að þau ósköp verði ekki á okkar dögum
segir gamla fólkið og hefur nautn af því að hræða lífsgoluna úr
börnunum, þessum svínabestum sem allt éta. — Sól gljáir á
Hörgána og silungur lónar í hyljum.
Sæludagar bernskunnar tóku skyndilega enda. Jón Ólafsson
lögréttumaður, fóstri Eldjárns, var kominn yfir sextugt og það
var hár aldur í Hörgárdal á átjándu öld. A útmánuðum 1755
lagðist hann, að líkindum í kvefsótt og lungnabólgu, og það
reyndist banalega hans. Séra Þorlákur Þórarinsson greftraði
hann á Möðruvöllum þann 16. apríl,57 og þar stóðu þau í hnapp
yfir moldum hans, Þórvör, Hallgrímur sonur hennar, Eldjárn
litli og sveitungarnir berhöfðaðir í næðingnum sem tvístraði
misfölskum tónum sálmalagsins.
Þórvör tók sig upp með Eldjárn og fluttist að Bægisá til
Hallgríms og Ólafar fögru. Móðurástar naut Eldjárn þó ekki
lengi því að Ólöf dó sem fyrr segir 1757; raunar óvíst að hann
hafi kært sig um atlot þessarar hálfókunnu og heilsulinu konu.
164