Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 86
listræna stjórnun á jólakoll-
eksjónum í gegnum árin. Það kallar
á ferðir erlendis og mörg sýnishorn
rata með manni heim úr þeim ferð-
um. Ég legg mikið upp úr að
skreyta heimilið og hafa jólastemn-
ingu allan desember. Fyrsta sem ég
geri á morgnana, reyndar alveg frá
því að það fer að dimma á morgnana
á haustin, er að kveikja á kertum og
spila músík. Í desember verða þetta
jólalög en oft klassísk og róleg lög
enda músík óneitanlega stór hluti
jólanna.“
Hvað kemur þér í jólaskap?
„Notalegt aðventuumhverfi, börn-
in mín, bestu vinirnir, kertaljós,
jólalög og foreldrar mínir. Pabbi á
afmæli á aðfangadag og rjúpnalykt-
in hennar mömmu er ómetanleg.“
Leggur þú mikið upp úr því að
leggja fallega á borð?
„Já, það á að vera veisluborð á jól-
um og áramótum. Það er helj-
arinnar vesen að græja hvíta dúka
og pússa silfur en það á við á þess-
um tíma árs að mínu mati.“
Í gegnum vinnu þína hjá IKEA
ertu með puttanum á púlsinum hvað
fólk vill. Finnst þér neysluvenjur
fólks vera að breytast varðandi jól-
in?
„Já, og kannski sem betur fer.
Fyrir það fyrsta er fjöldi fólks í
heiminum sem heldur ekki jólin há-
tíðleg. Margir gera sér samt daga-
mun á þessum dögum þó svo að
trúarlegi þátturinn fari sífellt
minnkandi og sé jafnvel ekki til
staðar. Þess má einnig geta að til
dæmis er stemningin öll önnur í
Morgunblaðið/Hanna
Jólaborðið í heild sinni er ein-
falt og fallegt. Sigga er með
hringlaga borðstofuborð sem
gaman er að skreyta.
Tönnin er
glerverk eftir
Siggu.
„Mér blöskrar á hverju ári lýsingarnar á gjöf-
um sem börn eru að fá hérna heima. Þetta
þekkist til dæmis varla í Svíþjóð og mér finnst
við hálfklikkuð þegar kemur að gjafahefðinni hér.“
❄
86 Jólablað Morgunblaðsins
Íslensk hönnun í aldanna rás
Sjón er sögu ríkari
Gullkistan
Frakkastíg 10/ sími 551-3160
www.thjodbuningasilfur.is