Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 94
94 Jólablað Morgunblaðsins
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15
Pottþétt gjöf handa matgæðingum
Kjöt- og grænmetisréttir, brauð,
kökur, súpur og margt fleira
GIRNILEGASTA
BÓK ÁRSINS
Á rmann er flottur ítauinu. Klæddur ívínrauðan flauels-jakka og meðslaufu við semhann keypti í
Vínarborg fyrir margt löngu. Hann
var heila helgi að jólaskreyta heimilið
fyrir þessa heimsókn en eins og sést á
myndunum á hver hlutur sinn stað og
er metnaðurinn mikill. Þegar ég spyr
hvað honum finnist skipta máli þegar
heimilið er skreytt fyrir jólin segist
hann fyrst og fremst sækjast eftir því
að fá hlýju inn til sín.
„Ég legg áherslu á skreytingar í
jarðlitum og út í fjólublátt, sem er lit-
ur aðventunnar. Kerti eru einnig
ómissandi,“ segir Ármann sem játar
að hann hafi ekki smekk fyrir jóla-
seríum. Hann skreytir gluggana með
pýramídalöguðum rafmagnsljósum á
aðventunni til að hafa gluggana upp-
lýsta.
„Síðan skreyti ég með margs konar
greinum sem ég set í vasa og skálar.
Árið 2000 lagði ég af lifandi jólatré.
Áður fyrr var ég með tveggja metra
lifandi jólatré sem tók heila kvöld-
stund að skreyta. Við tók handsmíðað
gamaldags jólatré málað í grænum
antiklit, með gyllta stjörnu og fót sem
á eru sett 12 kerti. Í raun finnst mér
þetta litla tré mitt miklu jólalegra en
þetta mikla barrtré sem ég var með á
árum árum. Þetta handsmíðaða
Allt upp á 10 hjá Ármanni
Ármann Reynisson er mikill stemningsmaður.
Hann leggur upp úr því að hafa fallegt í kringum
sig, vill hafa allt vandað og fínt. Það á ekki bara við
um húsgögn og innanstokksmuni heldur einnig um
jólaskraut. Jólablað Morgunblaðsins fékk að taka
forskot á jólin á heimili Ármanns, sem var ekki bara
búinn að skreyta heldur búinn að leggja á borð
með einu sögufrægasta matarstelli sem sögur fara
af hérlendis og víðar.
Marta María | martamaria@mbl.is
Morgunblaðið /Hari
Ármann hætti að vera
með jólatré árið 2000 og
keypti þá þetta hand-
gerða tréjólatré sem
hann skreytir.