Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2017, Page 28

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2017, Page 28
27 mátt sín mikils gegn „harmleik stórvelda stjórnmála.“11 Á Balkanskaga rákust á hagsmunir Rússlands og Habsborgararíkisins. Síðast en ekki sízt magnaðist gömul ásælni Rússa í yfirráð yfir sundunum milli Svartahafs og Miðjarðarhafs, og varð snar þáttur í strategíu þeirra. Allir þessir spennufletir komu við sögu í aðdraganda og upphafi stríðs sumarið 1914. Þeir atburðir voru annað og meira en ytri skilyrði byltingar- innar; hún mótaðist öll af áhrifum og afleiðingum styrjaldarinnar. Af rann- sóknum sagnfræðinga verður ekki ráðið að alevrópskt stórveldastríð hafi verið óumflýjanlegt, og er því ekki út í hött að velta fyrir sér hvert orðið hefði framhald mála í Rússlandi ef tekizt hefði að afstýra þeirri útkomu.12 Staðan eftir 1905 var þannig að friðsamleg leið til umbóta virðist mjög 11 John J. Mearsheimer, The Tragedy of Great Power Politics (New York: W.W. Norton, 2016) 12 Í eldri umræðu var því oft haldið fram að heimsstyrjöldin fyrri hefði verið óum- flýjanleg, en tilgreindar voru mismunandi ástæður. Kenning Leníns um heims- valdastefnuna átti að sýna fram á að stríðið væri nauðsynleg afleiðing af þróun kapítalismans og uppskiptingu heimsins milli auðvaldsríkja. Allt aðra skoðun höfðu þeir sem leituðu geopólitískra skýringa og töldu myndun tveggja stórríkjabanda- laga hafa óhjákvæmilega valdið allsherjarstríði. Enn ein túlkun á þessum nótum beinir sjónum að uppgangi og valdsækni þýzka keisaraveldisins og þar af leiðandi óafstýranlegum árekstri við alþjóðlega stjórnmálaskipan. Í því sambandi er gjarnan vitnað í þýzka sagnfræðinginn Fritz Fischer, sem árið 1961 gaf út mjög umdeilda bók um stórveldisstefnu Þýzkalands og fyrri heimsstyrjöldina (nýjasta útgáfa: Fritz Fischer, Griff nach der Weltmacht: Die Kriegszielpolitik des kaiserlichen Deutschland 1914/18 (Düsseldorf, Droste Verlag, 2009)). Ekki verður lengur dregið í efa að Fischer vakti athygli á veigamiklum þýzkum rótum stríðsins (og fékk í fyrstu litlar þakkir fyrir); en gagnrýnendur hans hafa að mínu viti sýnt fram á að hann las of mikið af síðar skilgreindum stríðsmarkmiðum inn í atburðarás sumarsins 1914. Hér verður ekki farið nánar út í þessi deilumál, en þess má þó geta að í kringum aldarafmæli heimsstyrjaldarinnar birtust allnokkur góð innlegg, t.d. eftirtaldar þrjár bækur: Christopher Clark, The Sleepwalkers; How Europe Went to War in 1914 (London: Penguin, 2013); Jörn Leonhard, Die Büchse der Pandora: Geschichte des ersten Weltkriegs (München: C.H. Beck, 2014); Herfried Münkler, Der grosse Krieg: Die Welt 1914 bis 1918 (Berlin: Rowohlt, 2014). Ekki verður af þeim séð að rannsóknir síðustu ára hafi styrkt nauðhyggjukenningar um orsakir stríðsins. Nær sanni er að þær varpi ljósi á margþættan aðdraganda, og það í tvennum skilningi; saman tengdust efnahagsleg, pólitísk og hugmyndafræðileg ferli, og á tókust stór- ríki sem öll höfðu einhver stríðshvetjandi áform (rétt er þó að í júlí urðu samræmdar aðgerðir ráðamanna í Austurrísk-ungverska keisara- og konungsdæminu sérlega afdrifaríkar). Innan þessa ramma virðast að vísu hafa hlaðizt upp kerfisvandamál og ágreiningsefni sem gerðu erfiðara að forða stríði, en ekki í þeim mæli að svigrúm til ákvarðana og athafna yrði óverulegt. Fróðlega umfjöllun um þetta er að finna hjá Michael Mann, The Sources of Social Power, v. 2: The Rise of Classes and Nation-States (Cambridge: Cambridge University Press 2012; fyrst gefið út 1993). BYLTINGIN MEðAL BYLTINGANNA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.