Jökull - 01.01.2014, Síða 86
Oddur Sigurðsson og Bergur Einarsson
Reykjarfjarðarjökull er aftur orðinn sléttur og flatur í sporðinn eftir framhlaupið. – Reykjafjarðarjökull is now,
as it was before the surge, even and flat at the terminus. Ljósm./Photo: Þröstur Jóhannesson, 18. ágúst 2013.
Sumarið hefur verið fremur kalt á Ströndum. Ég
var samfellt sex vikur, frá 16.6. og hitinn fór varla upp
fyrir 5◦C fyrsta hálfa mánuðinn. Meiri snjór er í fjöll-
um en í fyrra sumar og aðeins komu örfáir hlýir dagar.
Jökuláin var aldrei til vandræða fyrir ferðafólk, alla-
vega ekki fyrir þá sem kunna að velja vað.“
Leirufjarðarjökull – Nýtt merki, járnstöng með kopar-
hring og áþrykktu merki „JÖRFI 195“ sett 125 metra
frá gamla merkinu.
Norðurlandsjöklar
Gljúfurárjökull — Kristján Eldjárn og Árni Hjartar-
synir mældu jökulinn í göngum. Aftur gerði síð-
sumarhret á Norðurlandi með fannfergi við jökulinn
en þó tókst að koma mælingu við vegna þessa að mik-
ið af snjónum tók upp fyrir mælinguna. Hins vegar
fór mæling forgörðum við Búrfellsjökul, Deildardals-
jökul, Bægisárjökul og Grímslandsjökul vegna snjóa.
Skafti Brynjólfsson lét þess getið í bréfi að snjór hefði
fallið til fjalla í júlí og tvisvar í ágúst og hulið megnið
af jöklunum.
Langjökull
Hagafellsjökull vestari – Snjóskafl var kominn við
röndina og því mjög erfitt að sjá jaðarinn með vissu.
Skekkjan var áætluð ±5 m.
Hagafellsjökull eystri – Dauðíshryggur í mælilínu tor-
veldar greiningu jökuljaðars. Því voru teknir tveir
punktar við skýran jökulsporð sitt hvoru megin við
mælilínu og jaðarinn settur þar sem lína milli þess-
ara punkta skar mælilínuna. Ekki brotnar lengur úr
jöklinum í Hagavatn. Í skýrslu síðasta árs var minnst
á hryggi á svæði sem er nýkomið undan jökli. Þess-
ir hryggir eru af verulegu leyti samsíða jökuljaðri og
gætu verið álitnir garðar sem myndast við framskrið
jökulsins að vetralagi. Það getur þó varla staðist þar
sem þeir eru mun þéttari en hratt hop jökulsins gerir
mögulegt. Mælingamönnum, þeim Einari og Gunnari
Sigurðssonum þótti líklegast að þetta væru sprungu-
fyllingar sem jökullinn hefði skilið eftir. Jökulskerið
sem er nýkomið upp úr jöklinum lítur út fyrir að vera
basalthraunlag.
Hofsjökull
Nauthagajökull – Foksnjór var undir jökuljaðri og því
erfitt að staðsetja sporð nákvæmlega. Ljóst er þó að
hop var venju fremur lítið.
Múlajökull suður – Lónið, sem getið var um í fyrra.
Hefur stækkað og hverfur sporðurinn í vatnið. Erfitt er
því að staðsetja jaðarinn nákvæmlega en ljóst að hann
hefur hopað. Leifur Jónsson veltir fyrir sér hvort lónið
sé syðsti hluti stöðuvatns er Múlajökull svamlar í.
86 JÖKULL No. 64, 2014