Jökull


Jökull - 01.01.2014, Side 102

Jökull - 01.01.2014, Side 102
Bryndís Brandsdóttir og Finnur Pálsson hlaupið náði hámarki 14. mars, rénaði allmikið dag- inn eftir og virtist áin orðin reið 16. mars (S.Þ., 1974). Hlaupið var talið hið stórkostlegasta í manna minn- um og einkum þótti jakaburðurinn mjög mikill, jaka- hrönnin lá 7 km eftir veginum og allt til sjávar. Hlaup- ið barst til Vestmannaeyja þar sem sjórinn umhverfðist svo menn náðu við illan leik til lands (S.Þ., 1974). Sigurður Þórarinsson (1974) telur að fregnir um eldsumbrot í nóvember 1891 og janúar 1892 ekki geta talist örugg sönnun þess að um gos hafi verið að ræða, og þaðan af síður að það hafi verið í Grímsvötnum. Miðað við að Grímsvötn, eins og við þekkjum þau í dag, ráða ekki við slík stórhlaup nema með viðbótar- innrennsli verður að ætla að eldgos innan vatnasviðs þeirra (sunnan Bárðarbungu, 4. mynd) hafi brætt jök- ulinn og vatnið runnið til Grímsvatna mánuðina á und- an hlaupinu. Gosið gæti hafa verið slitrótt og því tek- ið lengri tíma að fylla vötnin og koma hlaupinu af stað. Greinilegt er að hlaupið hagar sér líkt og Gjálp- arhlaupið, með fljóðbylgju niður sandinn sem brýtur upp jökuljaðarinn og ber ísjaka niður allan sand. Skeiðarárhlaup hófst 18. janúar 1897. Hlaupið var ekki talið eins stórvaxið og hlaupið 1892 en mikill jakaburður fylgdi því. Stefán landpóstur, á leið austur sandinn sneri við þegar hann sá flóðbylgju brjóta upp jökulinn við Sæluhússkvísl (S.Þ., 1974). Ísafold 24. árg., 82. tbl., 20. nóv. 1897, bls. 326. „Fyrir tæpum hálfum mánuði fór að bera töluvert á öskufalli um suðurhjeruð landsins, allt austan frá Skeiðará og jafnvel vestur að Hvalfirði, ef eigi lengra, mest þó austanfjalls (Hellisheiðar). Segir svo skil- orður maður úr Laugardælahverfi í Flóa, að þar hafi fyrst orðið vart við það í harðri austanátt og dimm- viðri sunnudagsmorguninn 7. þ. m., á sauðfje, er var allt krímótt í framan og aptur á háls. Þriðjudaginn næstan eptir, 9 s. m., var bjart veður, og mátti þá sjá háan öskumökk uppi af Hestfjalli í Grímsnesi, tók út yfir fjallið beggja vegna og hátt í lopt upp. Nokkrum dögum síðar, aðfaranótt sunnudagsins næsta, snjóaði nokkuð eystra, og var þá mikið ryk á snjónum um morguninn, eins og mómold. Undir Eyjafjöllum og í Mýrdal hafði öskufallið gert vart við sig í norðanátt. Af eldgosi stafar það sjálfsagt, þetta öskufall; en hvar það muni vera, er óráðin gáta. Það getur naumast verið í neinum af suðurjöklunum, eptir áttinni, þar sem reykmökkurinn sást úr Flóanum, fráleitt sunnar en nyrzt í Vatnajökli; bezt virðist stefnan koma heim við Dyngjufjöll (Öskju)“. Þessi stefna bendir til þess að gosið hafi við Grímsvötn (S.Þ., 1974). Gos í Vatnajökli 1902–1903 Ösku varð vart á fé á Fljótsdalshéraði 13. desember 1902 og eldsbjarmi sást í suðri frá Hrafnagili í Eyja- firði 20. desember. Í sama mánuði komu hlaup í Skjálfandafljót og Jökulsá á Fjöllum sem tóku af ferj- ur á báðum. Þrír eldstrókar sáust frá Reykjahlíð 31. janúar 1903. Sigurður Þórarinsson (1974) dregur þá réttmætu ályktun að þessar fréttir bendi eindregið til eldsumbrota í Vatnajökli, suður af Dyngjuhálsi. Norðurland 2. árg., 38. tbl., 13. júní 1903, bls. 151. „Á áliðnum degi þ. 28. maí síðastl. sá síra Árni pró- fastur á Skútustöðum mökk koma hátt upp á loftið og bera yfir miðja Trölladyngju, skamt vestan við Sel- landafjall, sem er allhátt; mökkinn bar fullum þriðj- ungi hærra en fjallið. Frá kl. 10 og fram eftir nótt- inni sáust eldneistar alltíðir, sumpart í mekkinum og sumpart á allstóru svæði til beggja hliða. Morgun- inn eftir var heiðskírt og bjart veður, en þá virtist liggja brunamóða á Dyngjufjöllum og út á Bláfjall. Mökkurinn kom þá aftur upp um daginn, miklu ljósari en áður, líkur hveragufu, stóð beint upp í loftið, og var á að gizka helmingi lægri en daginn áður. Eftir þann dag bar lítið á þessu. Eldgosið hlýtur að vera í Vatnajökli og ber yfir sömu stöðvar eins og eldgos, sem menn þóttust sjá í síðastl. desember... Tæpri viku eftir er eldgosið sást í maí, 4. og 6. þ. m., komu svo mikil hlaup í Jökulsá á Fjöllum og Skjálfandafljót, að fádæmum sætir. Kunnugir menn geta ekki gert sér grein fyrir þeim hlaupum á annan hátt en þann, að þau hljóti að hafa staðið í sambandi við eldsumbrot. Geta má þess jafnframt, í síðastl. desemb. komu líka í bæði þessi vötn svo óvenjulega mikil hlaup, að þau tóku ferjur á báðum vötnunum. Sennilegt þykir, að þau hafi stafað af samskonar orsökum.“ Norðurland 2. árg., 39. tbl., 20. júní 1903, bls. 155. Úr bréfi Halldórs Illugasonar á Halldórsstöðum, rit- að 12. júní. „Menn hafa þózt sjá þess full merki, að eldur mundi uppi vera suður á öræfum. Mývetning- ar hafa séð reykjarmökk mikinn í suðri. Reykdæl- ir sáu og eldbjarma mikinn eina nótt eigi alls fyrir löngu. Eigi hafa menn vitað með vissu, hvar eldgos 102 JÖKULL No. 64, 2014
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.