Jökull


Jökull - 01.01.2014, Page 103

Jökull - 01.01.2014, Page 103
Umbrot tengd Bárðarbungu og Grímsvötnum á 19. öld. þetta væri. En eftir stefnu að dæma hefir verið ætlað, að það mundi norðvestan við Vatnajökul eða norðan við Tungnafjallsjökul. Þann 10. þessa mánaðar fór- um við nokkurir Laxdælir austur á Reykjaheiði að rýja geldfé. Var þá reykjarmökk ógurlegann að sjá í suðri. Sögðu þeir, er kunnugir voru, að hann mundi nálægt Trölladyngju....Það var í sólarupprás, er við komum upp á hnjúkinn [Gustahnjúkur er syðst í Lambafjöll- um]; var þar andsvalt mjög uppi, en fagurt um að lit- ast, og útsýni hið tignarlegasta. Þaðan sést yfir öll nærliggjandi héruð... Engan reyk var að sjá, er við komum upp, og þótti oss ilt, ef ferð vor yrði eigi til neins fróðleiks. En brátt sáum við, að Skollinn sá hinn mikli var fullur úlfúðar. Tveir reykjarstrókar tóku að hefja sig upp úr Vatnajökli, og var all-skamt milli þeirra; annar var nokkuru minni en báðir þó miklir. Reykurinn steig hátt í loft, þar til er hlé nokkurt varð á gosinu. Leið svo lítil stund uns aftur tók að gjósa. Meðan við sáum, gaus eigi nema litla stund í senn og liðu nærfelt 4 mínútur á milli. Eigi var mökkur þessi nær því svo mikill og sá, er við sáum hið fyrra sinn. Hefir hann sést sem svartur skýflóki langa hríð í senn, jafnvel dögum saman jafnmikill. Reykurinn kom upp austanvert á bungu þeirri, sem er vestan til á Vatna- jökli. En síðar var hægt að greina, hve sunnarlega hann var. Eigi hefir orðið vart við ösku hér um slóð- ir, en hlaup hafa komið í vetur í Jökulsá á Fjöllum og Skjálfandafljót og hefur það þótt benda til þess, að eldur myndi uppi í Vatnajökli, enda er það nú ekki lengur vafamál.“ Ofangreind lýsing og miðið sem hún gefur hafa ekki verið tekin með í mati á staðsetningu gossins. Af miðinu má ráða að gosið hefur verið austan Bárðar- bungu og vestan Grímsvatna, í um 150 km fjarlægð frá útsýnisstaðnum. Stefnan samræmist miðum Árna prófasts á Skútustöðum, skammt vestan við Sellanda- fjall og yfir miðja Trölladyngju, sem og miði Hann- esar á Núpsstað (24. mynd í S.Þ., 1974) sem skerast norðan Grímsvatna. Önnur mið skerast við Þórðar- hyrnu. Sigurður Þór. (1974) telur að gosið hafi ná- lægt Þórðarhyrnu 1903, m.a. með tilvísan til Skeiðará- rhlaupsins, sem fylgdi þessu gosi, en það flæddi hærra á vestursandinum en nokkuð annað hlaup sem Hannes á Núpstað upplifði. Haukur Jóhannesson (1983) telur að eldgosið 1903 sé mesta Grímsvatnagosið á 20. öld. Stórhlaup í Skeiðará, Skjálfandafljóti og Jök- ulsá á Fjöllum verða vegna eldgosa innan vatnasviða þeirra (1. og 4. mynd). Eldgos í norðvesturbrún Bárð- arbungu valda hlaupum í Skjálfandafljóti og eldgos í norðaustur-, austur- og suðausturjaðri bungunnar hlaupum í Jökulsá á Fjöllum. Eldgos í vesturjaðri bungunnar valda hlaupum í Köldukvísl og eldgos í suðurbrúninni geta veitt bræðsluvatni til Grímsvatna. Draga verður þá ályktun að eldgosin 1902 og 1903 hafi átt upptök á fleiri en einum stað við rætur Bárðar- bungu og norðanverð Grímsvötn. NIÐURLAG Aukið eftirlit með jarðskjálftavirkni og aflögun meg- ineldstöðva Íslands hefur stóraukið skilning vísinda- manna á uppsöfnun kviku í grunnstæð kvikuhólf og hegðun kvikuganga. Sú reynsla varpar nýju ljósi á sambærilega atburði í fortíðinni. Með sama hætti og kvikuhlaup Kröfluelda gáfu vísindamönnum innsýn í eðli eldsumbrota í Öskju 1875 og kvikuhlaup það- an til norðurs í Sveinagjá, veitti Gjálpargosið norðan Grímsvatna haustið 1996 nýja sýn á eðli eldsumbrota í Vatnajökli fyrr á tímum. Enginn gat séð það fyr- ir að eldgos norðan Grímsvatna gætu átt rætur sínar að rekja til Bárðarbungu en skjálftavirkni í öskjurima hennar og færsla skjálftanna til suðurs í aðdraganda Gjálpargossins (Páll Einarsson og fl., 1997) gaf ótví- rætt til kynna að kvikugangur til suðurs frá Bárðar- bungu hefði hleypt gosinu af stað. Telja verður líklegt að stóru nítjándualdar jökul- hlaupin 1838, 1852, 1861, 1867, 1892 og 1903 tengist öll eldvirkni innan vatnasviðs Grímsvatna með svip- uðum hætti og eldgosin 1938 og 1996. Leiða má lík- um að svo hafi einnig verið 1934. Saga eldfallavöktunar á Íslandi er ekki löng en jarðskjálftamælingar síðustu áratuga sýna að skjálfta- virkni megineldstöðva Vatnajökuls er sveiflukennd (5. mynd). Skjálftavirkni svæðisins hefur farið vax- andi frá 2002–2003. Þegar virknin eykst í Bárðar- bungu vex hún einnig við Kistufell, Tungnafellsjök- ul og í Kverkfjöllum. Einnig virðast tengsl á milli skjálftavirkni í Grímsvötnum og á Lokahrygg, stund- um í takt við Bárðarbungu. Skjálftavirkni í Bárðar- bungu, við Kistufell, á Lokahrygg og við Herðubreið- artögl fór vaxandi í aðdraganda Gjálpargossins í sept- JÖKULL No. 64, 2014 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.