Jökull


Jökull - 01.01.2014, Page 156

Jökull - 01.01.2014, Page 156
Society report VORFERÐIR JÖRFÍ Á VATNAJÖKUL 2014 30. maí – 7. júní og 7. – 11. júní Magnús Tumi Guðmundsson Nordvulk, Jarðvísindastofnun Háskólans, Öskju, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík, mtg@hi.is Áhugi vísindamanna og þörf samfélagsins fyrir rann- sóknir á Vatnajökli fer stöðugt vaxandi. Sjálfvirkum og sírítandi tækjum fjölgar og streymi upplýsinga vex auk þess sem leitað er svara við sífellt flóknari spurn- ingum sem krefjast nákvæmra mælinga. Það er því engin tilviljun að verkefnum í vorferð JÖRFÍ fjölgi frekar með árunum. Jafnframt er nú orðið algengt að einhverjir þátttakenda gisti í minni húsunum á jökl- inum, í Kverkfjöllum, Esjufjöllum og Goðahnjúkum hluta ferðarinnar. Vorferðin 2014 ber þessari þróun vitni. Vegna þess hve verkefnalistinn var langur varð að ráði að hafa ferðina tvískipta. Fyrri hlutinn var að öllu leyti eins og venjuleg vorferð að lengd og um- fangi. Seinni hópurinn fór síðan upp á Grímsfjall um leið og sá fyrri kom niður. Í seinni hópnum voru færri auk þess sem dvölin var styttri. Sá sem þetta ritar leiddi fyrri hópinn en Guðfinna Aðalgeirsdóttir þann seinni. Fyrri hópurinn lagði af stað föstudagskvöldið 30. maí. Miklir eldsneytisflutningar fylgdu þessari ferð því koma þurfti fyrir olíubirgðum til ársins vegna rafstöðvarinnar á Grímsfjalli, en hún þjónar Tetra sendi Neyðarlínunnar auk þess að sjá húsum JÖRFÍ og tækjum þar fyrir rafmagni. Sérstakur flatvagn var því fenginn undir rúmlega tuttugu 200 lítra eldsneyt- istunnur og hluta af öðrum búnaði ferðarinnar. Vöru- bíll Hjálparsveitar Skáta í Reykjavík flutti snjóbílinn og dró flatvagninn inn í Jökulheima. Þokkalega gekk upp Tungnaárjökul á laugardeginum, en við komum á Grímsfjall í hraglanda og krapahríð. Veðrið á sunnu- deginum 1. júní var síst betra og því var lítið unnið úti á jökli. Mánudagur byrjaði með dumbungi en síðan reif af sér. Þann dag var unnið í mælingum víða um jökulinn. Sex manns gistu í Kverkfjöllum aðfararnótt þriðjudags. Hópurinn safnaði gassýnum og rannsak- aði ummerki um gufusprengingar í Gengissiginu í ág- úst árið áður. Einnig var skálinn í Esjufjöllum nýtt- ur, en þar voru tveir leiðangursmenn frá sunnudegi til þriðjudags og unnu að endurbótum á jarðskjálftamæli og GPS tæki Veðurstofunnar á Káraskeri. Síðdegis á miðvikudag og fimmtudaginn allan voru aðstæður til útivinnu þokkalegar og tókst þá að klára rannsóknar- verkefni ferðarinnar að mestu. Í góðviðrinu á fimmtu- dag var unnið að kappi við að skrapa og gera skálana klára fyrir málningu. Áætlað var að gera sérstaka ferð og mála seinna um sumarið en þrálát væta og dumb- ungur gerði þær fyrirætlanir að engu. Á föstudagsmorgninum 6. júní hélt fyrri hópurinn niður af jöklinum í glampandi sól og hægviðri. Ekki var laust við að löngunin til að yfirgefa Grímsvatna- hrepp væri lítil í þessu góða veðri. Gist var í Jökul- heimum og þar slegið upp veislu um kvöldið. Allt fór það mjög vel fram. Á laugardeginum fór svo hópurinn til byggða, an nokkrir drifu sig reyndar strax á föstu- dagskvöldið eftir veislumatinn. Þátttakendur í fyrri ferðinni voru 23. Í hópnum var fólk frá sex löndum, flestir voru sjálfboðaliðar JÖRFÍ en einnig var fólk frá Jarðvísindastofnun Háskólans, Veðurstofu Íslands og Háskólunum í Gautaborg og München. Seinni hópurinn lagði upp úr Reykjavík sama dag og fyrri hópurinn yfirgaf Grímsfjall. Í Jökulheimum hittust hóparnir. Þar varð nokkur umstöflun því tveir bílanna sem niður komu fóru aftur upp á jökul. Seinni hópurinn var síðan á jöklinum í einmunablíðu fram á þriðjudag 10. júní og kom til byggða á miðvikudegin- um. Í þessum hluta voru 16 þátttakendur, sjálfboðalið- ar JÖRFÍ, fólk frá Jarðvísindastofnun, Veðurstofunni, Háskólanum í Cambridge, Bresku Heimskautastofn- uninni (BAS) og Háskólanum í Dublin. Sveinbjörn Steinþórsson og Vilhjálmur Kjartansson voru í báð- 156 JÖKULL No. 64, 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.