Breiðfirðingur - 01.05.2018, Síða 12

Breiðfirðingur - 01.05.2018, Síða 12
BREIÐFIRÐINGUR12 Þeir frændur hafa reyndar ekki farið varhluta af endurskoðuninni á sögunni. Ritnefnd á vegum Alþingis samþykkti að Snorri væri höfundur Egils sögu þegar ákveðið var að hún skyldi tekin með í heildarsafn verka hans. Meginhvatamaður þeirrar samþykktar var þáverandi forseti Alþingis, Halldór Blöndal, og er þetta eina dæmi sem mér er kunnugt um þess efnis að þjóðþing hafi tekið sér úrslita­ vald í höfundargreiningu. Um Sturlu er hins vegar alkunna að Einar Kárason skáld og margir fleiri hafa hengt á hann lárviðarkransinn sem á stendur Höfundur Njálu, auk allra annarra sagna sem honum hafa verið eignaðar (t.d. Grettlu). Allt kann þetta að vera laukrétt, en það er þá líka dæmi um það sem líka gerðist en enginn mundi. Hér verður ekki einu sinni bætt bunu í þann bullarsmellinn læk þar sem menn þvo höfunda Íslandingasagna eins og aðra gullmola úr sand­ inum. Hins vegar langar mig að reyna að átta mig sem gleggst á þeirri mynd sem mér sýnist Sturla Þórðarson bregða upp af föðurbróður sínum Snorra Sturlusyni. Og þá kann oftar en ekki að verða spurt: Hvers vegna var sagt svona grannt frá þessu en þagað yfir hinu? Og ekki síður: Hvers vegna var þetta orðað svona, hvað bjó þar að baki? Árin í Odda Snorri Sturluson ólst upp í Odda á Rangárvöllum eftir að Jón Loftsson Odda­ höfðingi hafði sett niður deilur þeirra Hvamm­Sturlu og Páls Sölvasonar í Reykholti. Frá þeim deilum segir í Sturlu sögu í Sturlungu og er ekki talið að Sturla Þórðarson hafi lagt hönd að þeirri sögu afa síns. Um uppvaxtarárin segir Sturla ekkert enda hvort tveggja í senn að Oddi var fjarri Breiðafjarðar­ og Borgarfjarðardölum og Sturla ekki fæddur meðan Snorri átti heimili í Odda. Síðari alda menn hafa haft mikinn vilja til að láta Jón Lofts­ son reka skóla í Odda með miklum lærdómi og skörungskap. Það styðst einkum við frásögn Þorláks sögu biskups af öllu því námi sem hann stundaði hjá Eyjólfi Sæmundssyni í Odda löngu áður en Snorri kom þangað. Það var einnig fyrir daga Snorra sem annað biskupsefni, Páll Jónsson (sonur Jóns Loftssonar og frillu hans Ragnheiðar systur Þorláks biskups) óx úr grasi í Odda og nam af spekingum staðarins en sat áreiðanlega ekki í skipulögðum skóla. Um nám Snorra er ekki orð í þeim tveim klausum Íslendinga sögu sem minnast á Oddaárin. Þar er fyrst þetta: Þá [þegar Hvamm­Sturla andaðist] var lokit deilum þeira Páls prests í Reykjaholti. Hafði Jón Loftsson sætta þá ok boðit til fóstrs Snorra, syni Sturlu. Hann var þá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Breiðfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.