Breiðfirðingur - 01.05.2018, Side 145
BREIÐFIRÐINGUR 145
Farið í bíltúr í Ljárskógasel og að Kötlunum í Fáskrúð. Veðrið var ekki gott,
hvasst og kalt. Um kvöldið var grillað að venju, nokkur börn fluttu skem
mtiatriði ásamt Helgu Ínu sem hafði skipulagt dagskrá fyrir þau. Hljómsveit
heima manna, Nikkólína, lék fyrir fjörugum dansi á eftir. Sérstaka athygli vakti
fjöldi hljóðfæraleikaranna. Þeir voru níu eða tíu og þar af sex sem spiluðu á
harmonikkur. Góð þátttaka var í ferðinni og einnig komu margir heimamenn
í grillið til okkar og voru með okkur á ballinu. Þetta var hin besta skemmtun.
Breiðfirðingakórinn bauð til veglegrar veislu í Breiðfirðingabúð þann 21. okt
ó ber sl. í tilefni 20 ára afmælis kórsins. Ólöf Sigurjónsdóttir, formaður kórsins,
flutti ræðu og rakti sögu kórsins í þessi 20 ár. Myndir frá starfi og úr ferðum
kórsins rúlluðu á sjónvarpskjá salarins. Kórinn söng svo fyrir gestina og bauð upp
á glæsilegt veisluhlaðborð. Einnig söng 7 manna „kvartett“ við undirleik Helga
Hannessonar nokkur lög við góðar undirtektir. Formaður Breiðfirðingafélagsins
ávarpaði kórinn og færði honum peningagjöf frá félaginu í tilefni afmælisins.
Einn ig flutti Sveinn Sigurjónsson, fyrrverandi formaður félagsins og aðalhvata
maður að endurreisn kórsins fyrir 20 árum, ávarp. Húsfyllir var í Breiðfiðringabúð
í þessari glæsilegu veislu. Um kvöldið var svo ball sem kórinn stóð að. Hjómsveit
Sveins Sigurjónssonar lék fyrir dansi af miklu fjöri. Breiðfirðingakórinn er svo
sannarlega falleg fjöður í hatti Breiðfirðingafélagsins.
Hagyrðingakvöld var haldið 16. nóvember í samstarfi við Barðstrendingafélagið
og tókst vel. Ólína Kristín Jónsdóttir frá Barðstrendingafélaginu stjórnaði kvöld
inu. Hagyrðingar voru: Aðalheiður Hallgrímsdóttir, Hlíf Kristjánsdóttir, Hjörtur
Þórarinsson, Jóhanna Fríða Dalkvist, Jón Kristjánsson og Ragnheiður Þóra Ragn
arsdóttir.
Jólaball fyrir börnin var haldið 30. desember. Hilmar Sverrisson lék og söng
jólalög með börnum og fullorðnum og fjörugir jólasveinar mættu. Aðsóknin
hefði mátt vera betri því þetta var góð skemmtun.
Tímaritið Breiðfirðingur kemur nú árlega út undir dugmikilli ritstjórn Svavars
Gestssonar. Ritið er bæði skemmtilegt og fræðandi. Þar er ýmsu efni haldið til
haga sem ella yrði sennilega gleymskunni að bráð. Það eru margir sem spyrja eftir
tímaritinu og hefur salan á því verið góð.
Breiðfirðingabúð lítur alltaf vel út og er félaginu til sóma. Í sumar var gólfið
slípað og lakkað og skipt um gólflista. Einnig voru veggir og gluggar salarins
málaðir. Þak hússins alls var málað í sumar og einnig gluggar að utan. Keyptur
var sjónvarpsskjár í salinn.