Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 14

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 14
I n g i b j ö r g S ó l r ú n G í s l a d ó t t i r 14 TMM 2010 · 1 Geirs Haarde axli ábyrgðina á hruninu og hann persónulega beri burt syndir Sjálfstæðisflokksins. Það er álíka viturlegt og að kenna Mikael Gorbatsjov um hrun Sovétkerfisins. Í lok níunda áratugar síðustu aldar fylgdumst við með fjörbrotum hins miðstýrða áætlanabúskapar. Nú horfum við upp á fjörbrot hins óhefta kapítalisma. Bæði þessi kerfi áttu sér öfluga talsmenn innanlands og utan, bæði kennimenn og valdsmenn en líka almenna fylgismenn. Ef við viljum nota hrunið til að koma okkur sem þjóð á réttan kjöl aftur verðum við að gera upp við þá samfélagstilraun á grundvelli frjálshyggj­ unnar sem hér stóð yfir í tæplega tvo áratugi og gerði okkur berskjald­ aðri en margar aðrar þjóðir þegar alþjóðlega fjármálakreppan reið yfir. Þessi tilraun var gerð fyrir atbeina stjórnmálamanna og hugmynda­ fræðinga þeirra, með stuðningi fjölmargra kjósenda og þegjandi sam­ þykki margra sem ýmist leggja ekki í eða þreytast á að fara gegn straumnum. Þetta uppgjör gerir kröfur til þess að við lítum í eigin barm – ein­ staklingar, stjórnmálaflokkar, fjölmiðlar, fræðimenn, stofnanir, fyrir­ tæki og hreyfingar – og skoðum hvort við áttum beinan þátt í viðhaldi þessa kerfis með aðgerðum okkar eða óbeinan með aðgerðaleysi okkar eða meðvirkni. Þetta uppgjör kallar ekki á neinn sálarútaustur eða játn­ ingar heldur fyrst og fremst að við séum heiðarleg við okkur sjálf og stöndum fyrir gagnrýninni en uppbyggilegri umræðu hvert á sínum vettvangi. Sjálfstæðisflokkurinn gerði virðingarverða tilraun til að hefja þetta uppgjör fyrir síðasta landsfund en á þeim sama fundi var lok sett á umræðuna með eftirminnilegum hætti.22 Framsóknarflokkurinn hefur sópað allri sinni fortíð undir teppið og einbeitt sér að því að skipta um fólk í forystunni. Samfylkingin er eins og einstaklingur í nýrri sambúð sem á gömlu sambúðina enn óuppgerða. Fjölmiðlar hafa enn ekki skilið til fulls mikilvægi fagmennskunnar og í stað þess að fara í hlutverk gagnrýnandans eru þeir nú allt í senn rannsakendur, dómarar og böðlar. Hagfræðingar, viðskiptafræðingar, endurskoðendur og lögfræðingar eru þögulir sem gröfin um sinn faglega heiður og sömu sögu er að segja um eftirlitsstofnanir samfélagsins. Allir virðast bíða eftir skýrslu rann­ sóknarnefndar Alþingis sem getur vissulega lýst upp vettvanginn en verður þó aldrei neinn stóridómur um þá samfélagstilraun sem hér fór fram og mismunandi aðkomu okkar að henni. Ég geri ráð fyrir að hjá flestum hafi einhvers konar meðvirkni verið að verki og þar liggi meginskýringin á því hvers vegna heilt samfélag tók þátt í tilraun af þessari stærðargráðu. Meðvirknin er gríðarlega öflugt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.