Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 41

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 41
L o f t s l a g s r á ð s t e f n a S a m e i n u ð u þ j ó ð a n n a TMM 2010 · 1 41 ekki einungis vísað til þess að iðnríkin beri sögulega ábyrgð á þeirri mengun sem við er að glíma heldur hafi þau einnig yfir að ráða nauð­ synlegri tækniþekkingu og fjármagni sem er forsenda fyrir sjálfbærri þróun.27 Þá skal haft í huga að efnahagslega séð þurfa þróunarríkin á ódýrri orku að halda. Til að þau geti nýtt hreina orku og þróast með sjálfbærum hætti þurfa þau fjárhagslega og tæknilega aðstoð frá iðnríkj­ unum. Í ræðu þáverandi umhverfisráðherra, Sivjar Friðleifsdóttur, um nið­ urstöður 7. þings aðildarríkja Rammasamningsins í Marrakesh árið 2001 segir: Í Marrakesh voru einnig samþykktar ákvarðanir um útfærslu á ákvæðum Kyoto­bókunarinnar um tæknilega og fjárhagslega aðstoð við þróunarríkin til þess að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga. Var þar m.a. byggt á yfirlýs­ ingu ESB­ríkjanna, Íslands, Noregs, Nýja­Sjálands, Sviss og Kanada, í Bonn í sumar þess efnis að þau væru tilbúin að leggja fram sameiginlega 410 millj­ ónir bandaríkjadala eigi síðar en árið 2005 til aðstoðar þróunarríkjunum. Þetta framlag kemur til viðbótar þeim fjármunum sem þróunarríkin hafa aðgang að í gegnum Hnattræna umhverfisbótasjóðinn (GEF) og aðra sjóði.28 Þróunarríkin telja sig ekki hafa séð svo mikið sem eitt cent af þeim 410 milljónum Bandaríkjadala sem þeim var lofað í Marrakesh. Í ofanálag telja þróunarríki að þeim sé ítrekað lofað sömu peningun­ um aftur og aftur. Fyrst sem þróunaraðstoð en síðan séu þau fjárfram­ lög skorin niður og þeim svo lofað á ný til loftslagsverkefna.29 Samningaviðræður í aðdraganda Kaupmannahafnarfundarins ein­ kenndust því af mikilli tortryggni þróunarríkja í garð iðnríkja. Gestgjaf­ arnir, Danir, sem stýrðu fundinum, náðu aldrei að ávinna sér trúnað ríkja þriðja heimsins. Þó var allt reynt af hálfu Evrópusambandsins og lykilríkja innan þess til að ná samkomulagi við Afríkuríki og aðra hópa þriðjaheimsríkja svo unnt yrði að þoka málum áfram. Mörg fátæk þróunarríki standa frammi fyrir gríðarlegum erfiðleik­ um í kjölfar loftslagsbreytinga. Ræktarland mun fara undir vatn eftir því sem yfirborð sjávar hækkar, húsnæði sömuleiðis, beitiland hverfur og eyðimerkur stækka. Margar þjóðir þriðja heimsins líta svo á að ekki aðeins þurfi þær að bera mestan kostnað vegna loftslagsbreytinga heldur sé krafa iðnríkjanna sú að þær haldi aftur af efnahagsþróun; að þeim verði enn á ný skammtað úr hnefa nýlenduveldanna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.