Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 67
S t r a u j á r n i ð o g v i s k í f l a s k a n TMM 2010 · 1 67 Darmstadt og varð þar ekki síður fyrir áhrifum en hinn íslenski kennari hans nokkrum árum fyrr. Á sjötta áratugnum hafði orðið til ný hreyfing róttækra listamanna sem kennd var við flúxus. Latneska orðið merkir flæði og list þeirra átti að hreinsa listalífið af markaðsmenningu, stofnanalist og smáborgara­ sýki. Þeir sem aðhylltust slíkar skoðanir voru gjarnir á að nota óhefð­ bundna hljóðgjafa í verkum sínum eða jafnvel brjóta upp listaverkshug­ takið með öllu. Listaverk þurfti ekki að samanstanda af öðru en stutt­ orðum leiðbeiningum til flytjandans um að framkvæma ákveðinn gjörning; í Composition 1960 no. 10 eftir LaMonte Young er flytjand­ anum gert að teikna beina línu og fylgja henni. Atli Heimir kynntist flúxusfólki í Þýskalandi og hreifst mjög af hugmyndum þess. Hann var óþreytandi við að skýra hinn nýja þankagang fyrir vantrúuðum löndum sínum og tók um leið upp hanskann fyrir þau íslensku tónskáld sem höfðu þegar skipað sér í fremstu röð framúrstefnunnar, ritaði til dæmis grein um Sonorities í Birting – þar sem hann hafði tekið sæti í ritstjórn – og lofaði frumleika Magnúsar Blöndal Jóhannssonar í hástert. Atli minnti á að hljóðfæri væri ekki annað en hljóðgjafi, og „hver kynslóð tónskálda hefur notað þau eftir sínu höfði, og ekki hafa tónskáld nútímans búið til þessi hljóðfæri sem þau verða að notast við, hvað þá heldur haft áhrif á það hvernig þessi hljóðfæri voru notuð áður fyrr og því fáránlegt að ætlast til að tónskáld í dag noti sömu hljóðfæri á sama hátt og kollegar þeirra fyrir hundrað árum“.26 Á unglingsárum hafði Atli samið sönglög sem annað slagið hljómuðu á öldum ljósvakans, en eiginlegt debút sem útlært tónskáld átti hann á tónleikum Musica Nova í Súlnasal Hótel Sögu 24. mars 1963. Þar var frumflutt verkið Hlými sem tók um 20 mínútur í flutningi, samið fyrir 11 hljóðfæri og þótti nýnæmi að nokkrum þeirra í fátæklegri hljóð færa­ flóru Reykjavíkur: klukkuspil, sílafónn, marimba, selesta og harpa. Verkið var tiltölulega nýtt, samið í Köln í október og nóvember árið áður og flutt þar áður en að tónleikunum á Íslandi kom. Sjálf nafngiftin var nýstárleg, dregin af orðinu hljómur. Atli Heimir hitti oft á falleg og frumleg heiti á verkum sínum: Mengi, Seimur, Hjakk, Klif, Ferli, svo aðeins séu tekin nokkur dæmi frá sjöunda áratugnum. Samkvæmt lýs­ ingu höfundar var niðurröðun efnisins í Hlými „bæði samanþjöppuð og gisin, þ.e. sagt eins mikið og unnt er á sem stytztum tíma – sagt eins lítið og unnt er á sem mestum tíma.“27 Þessi lýsing segir raunar ekki sérlega margt og alls ekki það sem líklegast var til að fara fyrir brjóstið á ein­ hverjum, að í verkinu notaði Atli vægast sagt fátíða hljóðgjafa. Enda brá
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.