Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 73

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 73
S t r a u j á r n i ð o g v i s k í f l a s k a n TMM 2010 · 1 73 sem Musica Nova hefur haft með höndum, og vonandi kveður við annan tón næst, svo áheyranda verði ekki léttir af að komast út og fá það staðfest, að Esjan var enn á sínum stað, og að það var dýrðlegt að anda að sér venjulegu lofti, og bezt að vera bara ósköp hversdagsleg mann­ eskja.“42 Atli tók viðtökunum með ró og hélt áfram að setja saman tóna með sínum óhefðbundna hætti. Hann ritaði pistil í Birting þar sem hann kvaðst almennt gefa lítið fyrir að eiga listræna samleið með íhaldssöm­ um gagnrýnendum: „Sumir álíta að þeir séu misskildir af því að þeir njóta ekki almennrar viðurkenningar. Mér finnst ég ekki vera misskil­ inn þó ýmsir skammi mig. Það er til fólk, sem mér er ekki um að vera sammála. Og meðan það er á móti mér, þá skilur það mig rétt.“43 Í útvarpsviðtali við Þorkel Sigurbjörnsson vorið 1970 sagðist Atli yfirleitt ekkert hugsa um áheyrendur þegar hann semdi tónverk sín. Því smekkur manna er ákaflega misjafn og margbreytilegur, og ef maður ætlaði að reyna að finna eitthvert meðaltal af honum, þá er ég hræddur um að maður væri kominn út í ógöngur. Og þar að auki er það smekkur hóps fólks, og hann er yfirleitt eins og hópsálin; eiginleikar hópsins eru yfirleitt verri heldur en þeirra einstaklinga sem setja þennan hóp saman. Þess vegna held ég að það sé alls ekki hægt, það sé bara tæknilega ekki mögulegt að taka neitt tillit til þess sem að áheyrendur kynnu að vilja. Ég held að maður viti ekkert um það. Það einasta sem maður hefur það er manns eigin listræna samviska, og maður hefur sinn eigin smekk, reynir að hafa hann eins góðan eins og hægt er, og reynir að vanda þetta náttúrlega eftir föngum. Ég held að það sé bara ekki mögulegt að finna neinn meðalsmekk.44 En þótt tónskáldið léti undirtektirnar sér í léttu rúmi liggja höfðu þær eigi að síður áhrif á framhaldið. Fönsun II og Fönsun IV, sem Atli Heim­ ir sagði í samtali við blaðamann Þjóðviljans í aðdraganda tónleikanna 1965 að yrðu flutt innan skamms, hafa aldrei hljómað á tónleikum.45 Tónskáldið hefur þetta að segja um viðbrögð gagnrýnenda, nú þegar áratugir eru liðnir: „Þeim fannst þetta ekki fallegt, og það er þeirra full­ komni réttur. En svo byrja menn að reyna að þagga niður það sem þeim líkar ekki. Það verður allt að fá að heyrast. Mér fannst alltaf að það væri nú ekki svo mikið mál þótt eitthvað væri flutt einu sinni og síðan ekki söguna meir.“46 Eitt af einkennum hinnar nýju listar var að láta hefðbundna nótna­ skrift lönd og leið. Hún þótti þröngva tónlistinni í fyrirfram gefnar skorður, en með því að leysa upp taktstrik og gefa flytjandanum frelsi til að ákveða tónhæð, jafnvel form og lengd verksins, var hægt að kanna ný
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.