Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 93
TMM 2010 · 1 93
Stefán Pálsson
Rýnt í rústirnar
Bókmenntagrein verður til
Þann fyrsta apríl 2006 sló danska dagblaðið Berlingske Tidende upp
stórfrétt af nýjasta útrásarævintýri Íslendinga. Samkvæmt blaðinu hafði
fjárfestingarsjóðurinn Saga Fairytales Holding ákveðið að ráðast í
byggingu nýs óperuhúss í borginni við sundið, steinsnar frá glænýrri
Kaupmannahafnaróperunni. Hildur Ámoldsdóttir, framkvæmdastjóri
Íslendinganna, staðfesti fréttina og tók fram að fjárfestarnir væru mjög
bjartsýnir á verkefnið.
Þótt aprílgöbb séu eðli málsins samkvæmt uppspuni, segja þau oft
ekki minni sögu en „alvöru“ fréttir. Góð aprílgöbb endurspegla það sem
efst er á baugi hverju sinni og þótt auðvitað einkennist þau af galgopa
legum ýkjum og útúrsnúningum, þá má gabbið ekki vera svo fráleitt að
enginn trúi. Það segir því talsverða sögu um þá mynd sem Danir höfðu
af nýríkum íslenskum peningamönnum á vormánuðum 2006 að hægt
hafi verið að spinna sögu um óperuhús númer tvö.
Sama dag á Íslandi gátu blaðalesendur fræðst um einstæð vaxtakjör á
húsnæðislánum Den Danske Bank sem taka myndi til starfa á hádegi í
útibúi SPRON við Skólavörðustíg. Dönsku bankamennirnir byðu íbúða
lán á þrjú prósent vöxtum, þó að hámarki tuttugu milljónir. Fylgdi sög
unni að betra væri að mæta snemma í röðina, því ekki yrðu nema u.þ.b.
tvö hundruð lán í boði.
Tæpum fjórum árum síðar eru glensfregnir þessar eins og ósmekk
legir brandarar eða pínlegar minningar um tímabil sem óþægilegt er að
rifja upp. Sumir kynnu jafnvel að segja að stórir hlutar íslensks þjóð
félags og efnahagslífs hafi um allnokkurt skeið verið eitt stórt apríl
gabb.
Þótt alltaf sé varasamt að varpa of snemma fram miklum spádómum
um „dóma sögunnar“ er óhætt að slá því föstu að síðustu misseri hafi
verið eitthvert mesta umbrotaskeið Íslandssögu síðustu áratuga. Sagn
fræðingar komandi kynslóða, sem og aðrir fræðimenn, munu freista