Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 118

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 118
118 TMM 2010 · 1 Á d r e p u r Guðmundur Páll Ólafsson Íslandssafn – að sá, virða og uppskera – Menn upplifa stöðugt nýja sýn á Móður Jörð og það svo mjög að til eru þeir sem velta því alvarlega fyrir sér hvort við, Homo sapiens, sem og aðrar lífverur séum einskonar jarðmyndanir. Ég hallast fremur að því að við séum sérútgáfur af vatni með algengum aukaefnum. Í þessum stóra, nýja gjafapakka hefur einnig komið í ljós að veðurfar sem talið hefur verið hrein jarðfræði, ekki síst úrkoma, er að drjúgum hluta líffræðilegt fyrirbæri og að hitastig á yfirborði Jarðar er og hefur verið temprað af lífverum ármilljónum saman. Úrkoma verður semsagt til fyrir tilstilli lífvera og skýin sem þeytast um himinhvolfin eru morandi af lífi og lífrænum efnum – sem þétta raka og framkalla úrkomu. Þetta eru öðruvísi rakaský heldur en við héldum og lærðum. Heimsmyndin hefur breyst og Jörðin er ævintýralegri en nokkurt mannlegt ævintýri. Líffræðingar hafa lengi velt vöngum um hvað sé lifandi og hvað ekki og bæði hvernig og hvar greina á þar á milli. En í stað þess að myndin hafi skýrst með aukinni þekkingu bregður svo við að mörkin verða æ ógreinilegri. Kannski erum við rétt að byrja að læra starfróf lífsins eða Jarðarinnar, læra að skynja Jörðina sem risafyrirbæri, risalíkama sem endurnýjar sig líkt og líkami okkar gerir án þess að við gerum okkur grein fyrir frumudauða og endurnýjun, rétt eins og hjartsláttur sem heldur áfram eða hættir burtséð frá því hvað við hugs­ um eða okkur þykir. Þannig er lífið. Náttúruferli eru viðbrögð við áreiti – og við erum ekki þau sömu í dag og í gær. Til þessa hefur stóra sýn líffræðinga verið vistkerfi og lífheimur, biosphere, þar sem vistkerfi eru nokkuð skýrt afmarkað hugtak á meðan lífheimur er óljóst, stórt fyrirbæri. Jarðfræðingar hafa á seinni árum skilgreint æ betur fræðigreinina: Earth System Science, jarðkerfafræði, sem umvefur allt. Vist­ kerfi og jarðarkerfin standa fyrir sínu en skilningur okkar á þeim og heildar­ samspilinu breytist – frá því að vera nokkuð aðgreind kerfi í það að vera ein heild þar sem æ örðugara reynist að greina á milli lífrænna og ólífrænna fyr­ irbæra. Jafnvel jarðskorpuflekar fá ekki að vera í friði sem hreinræktað jarð­ fræðifyrirbæri. Rökstuddur grunur leikur á að starfsemi lífvera sé kveikjan að atburðarásinni sem þrýstir fleka ofan í iður. Ólíkt dæmi er magnetít, seguljárnsteinn sem er algeng steind í basalti og myndast undir miklum þrýstingi í jörðu við háan hita. En seguljárnsteinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.