Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 125

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 125
Á d r e p u r TMM 2010 · 1 125 að danskir menn, sem höfðu brennandi áhuga á hinum fornu fræðum og efni og aðstöðu til að láta prenta bækur, leituðu samstarfs við Íslendinga til að heyja fróðleik í handritum þeirra. Þeim var vorkunn þótt kunnáttan í fornri íslensku væri takmörkuð þar sem hjálpartæki til náms voru engin eða mjög ófullkomin og textar óútgefnir í handritum. Ástæða er til að hafa í huga að allir þeir þrír Danir sem hér eru nefndir voru af voldugum og auðugum embættismanna­ eða aðalsættum og höfðu áhrif á æðstu stöðum, en það skipti ekki litlu máli í þjóðfélagi þess tíma. Vatnaskil urðu í þessari fræðastarfsemi, þegar Árni Magnússon og Mette kona hans undirrituðu erfðaskrá sína 6. janúar 1730, degi fyrir andlát Árna. Í skránni er vikið að mörgum hlutum, en það mikilvægasta er að þau arfleiða Hafnarháskóla að öllum eigum sínum og lýsa vilja sínum um hvernig með þær skuli farið. Um fjármuni segir að þeim skuli ráðstafað til að ráða einn eða tvo stúdenta frá Íslandi til starfa í samræmi við óskir Árna um hvernig starf þeirra megi verða föðurlandinu og almenningi að gagni. Hér lætur arfleiðandinn í ljós eindreginn vilja um ákveðna nýtingu arfsins, og nýting fjármunanna er að sjálfsögðu tengd handritasafninu. Það var þessi vilji arfleiðandans og túlkun á honum miðað við breyttar aðstæður sem var undirstaða þess að danska þingið gat löngu síðar ákveðið að afhenda Íslendingum hluta handritasafnsins. Á erfðaskránni byggist stofnskrá sem loks var gerð og staðfest af konungi árið 1760. Þar er tekið fram að þessi arfur skuli „til ævig Tiid være bestemmet og henlagt til at oplyse, forbedre og til Trykken at befordre lade alt, hvad der angaaer Nordiske, nemlig Danmarks, Norges og under- liggende Landes Historie, Sprog og Antiquitæter …“ Að þessu verki er enn unnið í nafni Árna Magnússonar bæði í Danmörku og á Íslandi í stofnunum sem bera nafn hans. Á átjándu öld voru íslenskir lærdómsmenn enn mjög háðir samvinnu við danska embættis­ og efnamenn, þrátt fyrir styrkþegastöður við Árnasafn. Þá hófust undir forsjá Árnanefndar útgáfur íslenskra fornrita með latneskum þýðingum, en í nefndinni sátu fulltrúar Hafnarháskóla, eins og stofnskráin mælir fyrir um, danskir prófessorar og embættismenn, oft einn Íslendingur eða tveir ef þeirra var völ. Ástæða er til að geta hér um Peter Frederik Suhm (1728–98) og starfsemi hans. Suhm var af stórauðugur maður af aðalsætttum. Hann hafði brennandi áhuga á bóklegri iðju og átti feikimikið bókasafn. Suhm hóf að rita risavaxna Danmerkursögu, en ætlaði sér um of og lauk því aldrei. Inngangurinn er 10 bindi, en það sem út kom af verkinu eru um 10 þúsund blaðsíður, og munu fáir nú ráðast í að lesa þau ósköp. Suhm réð einatt íslenska stúdenta eða lærdóms­ menn í vinnu til undirbúnings nýjum útgáfum fornrita og þýðingum á latínu og varði til þess miklu fé, þótt árangurinn yrði ekki eins mikill og að var stefnt, og var ekki alltaf við hann að sakast. Það er fyrst með Rasmus Kristian Rask (1787–1832) að fram kemur danskur fræðimaður sem stendur hinum íslensku fyllilega jafnfætis í skilningi á forn­
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.