Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 127

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 127
Á d r e p u r TMM 2010 · 1 127 Rafn frábærlega skemmtilega í Dægradvöl, og er lýsingin of löng til að lesa hér, en Bensi slær þar úr og í að vanda. Ég freistast þó til að taka stuttan kafla: Rafn var lífið og sálin í fornfræðafélaginu, hann hafði stofnað það og var sekréteri, en réði einn öllu og gerði allt … Rafn keyrði kónga og keisara, greifa og baróna og marga ríkismenn og lét þá gefa of fjár til félagsins, svo það varð langauðugast allra slíkra félaga í Danmörku og líklega alstaðar, og vissi enginn hvernig honum tókst þetta; sjálfur var hann hlaðinn heiðursmerkjum, en margir öfunduðu hann … (Dægradvöl, útg. 1965, 215) Og síðar: Rafn hafði mikil mök við Íslendinga og gaf út íslenzk fornrit öðru fremur, en þó var hann aldanskur í lund … (Sama stað, 116) Á síðari hluta nítjándu aldar komu til starfa í þessum fræðum tveir menn, annar danskur, hinn íslenskur, sem fengu ótrúlega miklu áorkað sem starfs­ menn Hafnarháskóla og Árnasafns, sá danski var Kristian Kålund en Íslend­ ingurinn Finnur Jónsson prófessor. Kålund var nokkru eldri, en báðir lifðu þeir og störfuðu talsvert inn á tuttugustu öld. Hin ótrúlegu afköst Finns við fræða­ og útgáfustörf eru alkunn, en ég get ekki látið hjá líða að minnast á þrjú stórvirki Kålunds, sem voru lýsing sögustaða á Íslandi í tveimur bindum, vís­ indaleg útgáfa Sturlungu og síðast en ekki síst skrár um handrit í Árnasafni og Konunglega bókasafninu, sem í meira en hundrað ár hafa verið ómetanleg hjálpargögn fyrir alla sem sinna rannsóknum á íslenskum handritum og forn­ um textum. Jón Helgason sagði mér sögu af samskiptum þeirra Kålunds og Finns, sem hann hafði eftir Knut Liestöl, norskum fræðimanni sem skrifaði m.a. um Íslendingasögur. Liestöl sat í Árnasafni, sennilega á öðrum áratug 20. aldar, þeim síðasta sem Kålund lifði. Hann sá að gott samkomulag var með þeim Finni og Kålund og gagnkvæm virðing, en undraðist að þeir skyldu þérast. Áttaði sig þó á því að vandinn var illleysanlegur samkvæmt ríkjandi siðum. Finnur var yngri og gat því ekki boðið Kålund dús, en jafnframt var Finnur hærra settur í embættismannakerfinu, svo að Kålund gat ekki boðið honum dús. Norska sveitamanninum þótti þetta ótækt og tók málið á dagskrá með þeim. Þeir urðu hjartans glaðir og þakklátir og þúuðust upp frá því. Finnur Jónsson og eftirmaður hans Jón Helgason voru sem prófessorar við Kaupmannhafnarháskóla með sæti í Árnanefnd sjálfkjörnir forystumenn iðk­ unar norrænna fræða í Danmörku hvor á eftir öðrum nærfellt í heila öld. Báðir voru þeir mikils virtir fyrir frábæra þekkingu og mikil afköst. En vitaskuld unnu þeir að málum með dönskum samstarfsmönnum í háskólanum og Árnanefnd og þurftu fulltingis þeirra til að skapa starfseminni þau skilyrði sem þurfti til að hún mætti blómgast. Á því skeiði sem Jón Helgason hafði forystu um rannsóknir og útgáfu má nefna þrjú mikilvæg skref sem stigin voru af Árnanefnd með opinberum stuðningi og urðu til að stórefla starfið undir hans forystu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.