Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 133

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Page 133
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2010 · 1 133 basli, hann lifði í sannkölluðu Fátæktarlandi. Forheimskunarlandið er hins vegar tvíræðara – jafnt sem grafskrift og bókartitill – en þó má álykta að það vísi til þeirrar forheimskunar mannkynsins sem tröllreið vestrænni menningu á tuttugustu öld, annars vegar í formi tveggja heimsstyrjalda og fjöldamenn­ ingar í kjölfar þeirra og hins vegar í formi trúarinnar á stór pólitísk hug­ myndakerfi. Hér er ekki síst átt við kommúnismann sem margir bundu útóp­ íska drauma við en sem reyndist hið versta einræði og ógnvaldur. Síðari bók Péturs fjallar að miklu leyti um þetta; hugmyndafræði tuttugustu aldarinnar og átök í íslenskri pólitík og menningarlífi á Íslandi en þetta tvennt var mjög svo samanslungið, eins og menn vita.10 Í þeirri sögu stíga, eins og áður segir, ýmsar aðrar persónur fram í miðju frásagnar og Þórbergur þokar – Halldór Laxness og Ragnar í Smára, en þó sérstaklega Kristinn E. Andrésson og eig­ inkona hans Þóra Vigfúsdóttir. Ein skýringin á því hversu fyrirferðarmikil þau hjón eru í frásögn Péturs er sú að Pétur leitar mikið í dagbækur Þóru Vigfús­ dóttur og notar þær til að bregða ljósi á tíðarandann. Dagbækur Þóru og dag­ bækur Þórbergs eru, auk verka Þórbergs sjálfs, þær heimildir sem Pétur byggir einna mest á í síðari bók sinni. Hér er um afar ólíkar dagbækur að ræða því Þórbergur lýsir aldrei tilfinningalífi sínu í dagbókum, hann færir inn veðurlýs­ ingar og heldur skrá yfir vinnu sína og hverja hann hittir yfir daginn, en til­ finningar eru fjarverandi. Dagbækur Þóru eru hins vegar, eins og Pétur orðar það, „ein logandi kvika – ýmist er hún hátt uppi eða langt niðri og hrifnæm með afbrigðum, hvort sem eru atburðir mannlífs eða fyrirbæri náttúrunnar“ (ÞÞ – í forheimskunarlandi, bls. 123). Síðari bókin tekur við ári eftir að þeirri fyrri lýkur og fylgir Þórbergi á leið­ arenda. Að mestu leyti er frásögn Péturs af ævi Þórbergs því í tímaröð en segja má að það séu bækur Þórbergs, þ.e. útgáfuröð þeirra, sem eru þær vörður sem Pétur rekur sig eftir. Þetta gerir það að verkum að Pétur fjallar ekki um bernsku Þórbergs í upphafi því bernskan kemur aðallega við sögu í síðustu verkum Þórbergs, Suðursveitarbókunum. Það einkennir þessar bækur Péturs framar öðru að hér skrifar skapandi höf­ undur um annan skapandi höfund; skáld mætir skáldi. Pétur býr frásögn sína í búning skáldsögunnar fremur en búning sagnfræðirits. Texti Péturs er list­ rænn texti og sem slíkur afar vel heppnaður og víða mjög áhrifaríkur, ekki síst þegar dregur að lokum. Þetta er áreiðanlega ástæða þess hversu góðar mót­ tökur bækurnar hafa hlotið hjá lesendum. Þar með er ekki sagt að Pétur sé að „skálda“ í merkingunni „ljúga“, þvert á móti tel ég að hann leitist við að hafa „sannleikann“ að leiðarljósi, hann tekur sér ekki skáldaleyfi á sama hátt og Þórbergur gerði þegar hann hagræddi sannleikanum að vild í bókum sínum. En Pétur leyfir sér hins vegar að sviðsetja og geta í eyður, þó alltaf með rök­ stuðningi. Sem dæmi má taka upphafskafla beggja bókanna. Upphaf þeirrar fyrri hjómar þannig: Alveg hefur Þórbergi láðst að greina frá ferðalagi sínu til höfuðstaðarins, eins og það hlýtur þó að hafa verið minnilegt kennileiti á lífsgöngu hans, þeirri sömu og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.