Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Qupperneq 20
L a r s L ö n n r o t h
20 TMM 2016 · 2
honum innblástur en gerði hann líka stundum bálreiðan, músa sem hann að
lokum sá sig tilneyddan til að berjast gegn. Það gerðist á þriðja áratugnum
þegar Nanna var búin að þýða nokkrar bækur eftir Einar Kvaran og hafði
tekist að gera hann svo þekktan í Svíþjóð að farið var að ræða um hann sem
kandidat til Nóbelsverðlaunanna. En þá hafði Sigurður skipt um skoðun á
Kvaran frá því að hann hvatti Nönnu til að þýða Sálin vaknar. Honum fannst
þessi spíritisti og raunsæismaður ekki lengur vera góður fulltrúi heimalands
síns úti í hinum stóra heimi. Í kjölfarið greip hann til sinna ráða og gagn-
rýndi höfundarverk Kvarans í greinum sem líklega gerðu út um möguleika
hans á Nóbelsverðlaunum, hafi þeir einhvern tíma verið fyrir hendi.6 Þess í
stað átti hann seinna meir eftir að leika stórt hlutverk í atburðarás sem leiddi
til þess að Halldór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin 1955.
Sigurður sýndi vissulega góða dómgreind þegar hann veðjaði á Halldór
Laxness sem Nóbelsverðlaunahafa og ekki Einar Kvaran. Hvað Nönnu þótti
um það er sagan þögul um. Neikvæðir dómar Sigurðar um þann höfund sem
hún, eftir hvatningu hans, hafði gert sitt besta til að kynna í Svíþjóð hafa þó
tæplega glatt hana. En hún varðveitti trúföst minninguna um sinn íslenska
eiginmann sem eitt sinn gaf henni hugrekki til að snúa baki við lífi sínu sem
eiginkona lögmanns í Västerås og hefja nýtt og meira spennandi, en vissu-
lega ótraustara, líf sem kennari og þýðandi íslenskra bókmennta.
Heimildir
Nanna Boëthius-Nordal, 1915–17. Dagbók (óprentað handrit varðveitt hjá E. Björklund, Skara).
Kristinn E. Andrésson, 1949. Íslenskar nútímabókmenntir 1918–1948. Reykjavík: Mál og menn-
ing.
Carl-Nycop, 1970. Bära eller brista. En tidningsmans memoarer 1909–1944. Stokkhólmur: Bon-
niers.
Ólöf Nordal, 1949. Úr blöðum Laufeyjar Valdimarsdóttur. Reykjavík: Menningar- og minningar-
sjóður kvenna.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, 2001. Björg. Ævisaga Bjargar C. Þorláksson. Reykjavík: JPV
útgáfa.
Sigurður Nordal, 1913–26. Óprentuð bréf (handrit varðveitt hjá E. Björklund, Skara).
Sigurður Nordal, 1919. Fornar ástir. Reykjavík: Þór. B. Þorláksson.
Sigurður Nordal, 1920. Snorri Sturluson. Reykjavík: Þór. B. Þorláksson.
Sigurður Nordal, 1942. Íslenzk menning. Reykjavík: Mál og menning.
Sigurður Nordal, 1987. Ritverk. List og lífsskoðun I–III. Ritstj. Jóhannes Nordal. Reykjavík:
Almenna bókafélagið.
Höfundur þakkar þeim sem gáfu honum dýrmætar bakgrunnsupplýsingar og aðstoðuðu við að
bera kennsl á persónur sem nefndar eru í bréfunum: Dótturdóttur Nönnu Böethius, Elisabet
Björklund, og sonardætrum Sigurðar Nordals, Beru og Guðrúnu Nordal.