Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Side 30

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Side 30
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r 30 TMM 2016 · 2 og sterka efniskennd, notaði í skartgripina bláskeljar, bein, steinbítsroð, smyrils- og ugluklær, víravirki, steina og glerhalla, langt á undan öðrum, módernisti sem sótti samt í þjóðlegar menjar, enda alin upp af handverks- mönnum. Amma Theodóra var steinasafnari, herbergi hennar troðfullt af steinum, mamma fékk að nota svoldið af glerhöllunum hennar. Þetta þótti skrýtið í denn, þjóðfélagið var í föstum skorðum. Hún og systur hennar voru bláfátækar en alltaf klæddar eins og upp úr tískuriti afþví mamma þeirra með stílgáfu saumaði á þær. Mamma vann heima og maður fann þegar hún varð annarshugar – auðvitað hefur maður verið að trufla hana allan daginn við það sem hún var að reyna að gera. Stundum beindi hún athygli manns að því sem hún var að gera svo að maður tæki þátt í því og hún fengi vinnu- frið. Ég er alin upp við form og sjónræna þætti í gegnum mömmu og reyndar málaði pabbi. Þau voru bæði bara yfir og allt um kring. Hafa þau haft áhrif á bækurnar þínar? Áreiðanlega, í bernsku mótast fagurfræði sem manni er að hluta úthlutað frá foreldrum og umhverfinu, svo hefur eðlið eitthvað að segja um grunn- fagurfræðina sem fylgir manni út lífið og mótar skoðanir manns og gjörðir. Þau eiga örugglega sinn þátt í fagurfræði minni. En Nonni bróðir, sem er tveimur árum eldri en ég, kynnti mig fyrir bókmenntunum. Hann var á kafi í heimslitteratúrnum og það er fyrir áhrif hans að ég fæ áhuga á bók- menntum þó foreldrar mínir hafi lesið mikið. En ég ætlaði aldrei að skrifa, mér datt ekki í hug að skrifa fyrr en að ég sest niður og skrifa fjörutíu ljóð og var þá orðin fjörutíu ára. Fór svo af stað og leitaði að útgefanda – ég vildi strax gefa ljóðin út – fann engan útgefanda og það hefur elt mig alla tíð, ég gaf fyrstu bókina út sjálf. Þegar ég var að reyna að selja þessa bók, á jólamarkaði á Vesturgötunni, hitti ég þig sem varst að selja teikningar og kannski einhverja bók. Mhm, já, akkúrat. Eitt ljóð fyrir hvert ár só far. Ertu gift? Hvað heitir maðurinn þinn fullu nafni? Já, við giftum okkur seint og um síðir, þá vorum við búin að vera saman lengi. Ég bað hans og hann játaðist mér og við héldum skemmtilega veislu, eiginlega einu stórveisluna sem við höfum haldið. Maðurinn minn heitir Eggert Þorleifsson. Áttu börn, hvað heita þau og viltu segja mér hvernig þau hafa mótað líf þitt? Ég á tvo syni, Bergstein Jónsson, og Sigurð Eggertsson. Bergstein eignaðist ég áður en ég kynntist Eggerti. Synir mínir hafa auðvitað mótað líf mitt því maður fer út fyrir sjálfan sig þegar maður eignast barn og ber ábyrgð á öðru lífi – svo mikla á ósjálfbjarga mannveru, það breytir manni gagngert. Ég
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.