Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Síða 31
A ð l í m a v e r ö l d i n a s a m a n
TMM 2016 · 2 31
veit ekki hvort ég hef verið góð móðir, ég vona það. Fullorðnir hafa þeir svo
mótað mig að einhverju leyti með persónuleikum sínum.
Hvort þykir þér skemmtilegra að elska eða vera elskuð?
Betra er að gefa en þiggja sagði Jesús forðum. En ég gef mér að þú eigir við
ástarsambönd. Þá er frjórra, skemmtilegra og betra að ást manns sé endur-
goldin, að eitthvað komi á móti svo úr verði eitthvað nýtt, þá á ég ekki endi-
lega við afkvæmi.
Ég ætla ekki spyrja þig um áhrifavalda en áttu bók/bækur sem þú grípur í,
sem þú tækir með á eyðieyju?
Á eyðieyju gagnast manni fátt nema handbók um sjálfsþurftir, nú eða um
sniðugar sjálfsmorðsaðferðir. Bókmenntir þrífast í menningu, eru áfram-
haldandi samtal. Ég á hins vegar margar bækur sem ég gríp oft í en get ekki
nefnt eina, gert upp á milli þeirra í stuttu máli.
***
Viltu segja mér frá skólagöngunni?
Ég lagði stund á sálfræði í Danmörku eftir stúdentspróf en hætti því og fór
í Kennaraháskólann, kláraði kennarapróf og fór að kenna. Eftir að ég hafði
kennt lengi og bjó með mörgu fólki og meðal annarra Megasi, ætlaði hann
að taka próf inn í Myndlista- og handíðaskólann og ég segi þá við hann:
Ég verð samferða þér í prófið. Við vönduðum okkur eins og við gátum og
teiknuðum okkur inn í Mynd og hand. Þá var ég komin yfir þrítugt og nam
þar í fjögur ár.
Hefur myndlistarnámið áhrif á ritstörfin? Leggurðu stund á myndlist?
Myndlistarnámið þroskaði mig og mótaði. Ég hélt tvær myndlistar-
sýningar á yngri árum og þó að ég hafi svikið myndlistina hefur hún aldrei
svikið mig alveg. Ég vinn ekki við myndlist en ýmislegt sjónrænt dettur mér
enn í hug og bý sumt til. Það er mjög fróðlegt að fara á myndlistarsýningar,
bæði góðar og vondar, þær segja mér margt um samfélagið.
Eru myndlistarsýningar svona mælistikur á samfélagið?
Já, eins og allar listir, á samfélagið og manninn sem í því býr. Lista-
maðurinn er svo flæktur í viðfangsefni sitt að hann skynjar stundum ekki
þær menningarlegu viðbætur sem hann hleður inn á myndir sínar. Meira að
segja landslagsmynd er í eðli sínu tískuteiknun og segir gjarnan meira um
tímana og menninguna en náttúruna.