Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Side 36
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
36 TMM 2016 · 2
Þær eru nú ekki ónýtar blásólirnar þarna í garðinum mínum, ættaðar
frá Himalajafjöllum, frænkur valmúans. En kannski er uppáhaldsblómið
bara dýragras eða bláin – bláin er fallegasta blóm sem ég hef séð, af Maríu-
vandarætt og vex í íslenskum móum, mjög sjaldgæf, skær indígóblá á lit,
algjört æði.
Uppáhaldsfugl?
Verð ég ekki segja lóan? Krumminn er nú líka ansi dramatískur. Eða
tjaldurinn sem ætlaði að nauðga mér í sumarbústað. Eina nóttina var kofinn
mikið laminn að utan, ég var ein, það var í apríl. Gesturinn bankar of frekju-
lega, hugsaði ég og opnaði ekki. Næstu nótt endurtók þetta sig og þriðju
nóttina, alltaf á sama tíma. Þá fer ég fram titrandi af hræðslu. Tjaldur er ansi
stór fugl, hann stendur á veröndinni og djöflast á rúðunni. Ég horfi í eineygt
augnaráðið, loks skynjar hann mig og fattar blekkinguna. Sennilega var
hann stakur og ástfanginn af spegilmynd sinni í gluggarúðunni.
Starrinn er líka glúrinn, af krákuætt, kemur hvert vor og klippir fyrstu
knúppana af valmúabreiðunni, mjög frekur í þá, svo kemur hann ekki aftur,
sækir aðeins í fyrstu knúppana. Mig grunar að þar finni hann morfín. Megas
sagði: Já, þetta er agressív tegund, hún þarf að sækja sér stöff til að mýkja sig
fyrir hreiðurgerðina.
En fátt toppar tregafullan söng lóunnar og heldur ekki örvæntingarfullt
ópið þegar hún blekkir mann í burtu frá hreiðrinu. Mahler hefur alltaf minnt
mig á lóusöng.
Áttu þér listrænt manifestó?
Nei.
Hlustarðu á tónlist þegar þú skrifar?
Nei, hef aldrei gert.
Hver er uppáhaldstónlistin þín? Hvers konar?
Öll góð tónlist, sama af hvaða ætt. Ég er gift tónlistarmanni, kamófler-
uðum sem leikara, hann hlustar mikið á tónlist og ég hlusta á það sem hann
hlustar á – hef átt því láni að fagna að hann velur ofan í mig ógurlega góða
tónlist, handpikkar þetta: góða söngvara, tónlistarmenn og hefur fyrir því að
leita. Ég er í lúxusaðstöðu sem ég nýt. En ég get aldrei alveg vanið mig af því
að hlusta stökum sinnum á Bach, hann lagfærir hjartsláttinn í mér.
Áttu rauðan kjól?
Já.
***