Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Page 48
Þ r ö s t u r Ó l a f s s o n
48 TMM 2016 · 2
inga jafnaðarmanna eins og það misvægi atkvæða, sem enn ríkir hér, eins og
hvert annað náttúrulögmál.
Staða stjórnmálaflokka
Frá upphafi þessarar aldar hefur verið í gangi mikil breyting á stöðu stjórn-
málaflokka um alla álfuna. Sú líflega skoðanamyndun og almenna umræða
sem áður átti sér stað innan evrópskra stjórnmálaflokka, einnig hér, er ekki
nema svipur hjá sjón. Flokksfélögum hefur fækkað og eru nú aðeins lítið brot
kjósenda. Nýjustu flokkarnir hafa enga skráða meðlimi.
Flokkarnir hafa því glatað hæfileika sínum til að vera sú mikilvæga brú
milli þjóðar og pólitískra stofnana ríkisins sem þeir einu sinni voru.
Þjóðþingin eru lítillækkuð í þá stöðu að vera leiksoppur eða leikfang
flokkanna, sem veldur því að þjóðirnar vantreysta báðum – flokkunum og
þjóð þingunum. Einnig hér á landi. Stefnuskrár flokka og pólitískar lífsskoð-
anir þykja gamaldags.
Nú eru evrópskir flokkar reknir eins og straumlínulöguð fyrirtæki, þar
sem formaðurinn og ímynd hans er talin skipta mestu máli fyrir árangur
flokksins. Persónur ýta stefnuskrám til hliðar. Fólk er með eða móti Merkel,
með eða móti Hollande, Cameron o.s.frv.. Við gætum heimfært þetta á
íslenska formenn, Árna Pál, Sigmund Davíð eða Bjarna Ben. Dugi þeir ekki,
er þeim ýtt til hliðar. Ásýnd og ímynd ræður öllu.
Ég gat þess hér í upphafi að sýn mannsins á sjálfan sig hafi breyst. Staf-
ræna byltingin hefur haft sín áhrif. Við erum öll jöfn á fésbókinni og þar er
enginn foringi. Þar tekur hver mið af sjálfum sér. Fólk er orðið sjálfsækið.
Margir bera eigin getu ekki lengur saman við afreksgetu, heldur eingöngu
við sjálfa sig. Horfa í spegil og þykir harla gott. Í því sambandi má nefna
allan þann fjölda sem telur sig ráða við embætti forseta Íslands. Sama sjálfs-
hyggja smitast inn í stjórnmálaflokkana. Binding við þá er talin tímaskekkja.
Stöðug þjóðaratkvæði eiga að koma í staðinn fyrir flokkslýðræði þjóðþing-
anna. Brúin milli þjóðar og þings skal vera þjóðaratkvæðið.
Hætt er við að þetta byrgi pólitísku samhengi sýn, ýti samfélagslegri og
samflokkslegri hugsun til hliðar, því flokkarnir varðveittu samfélagssýnina,
hver á sinn hátt. Hér mætti einnig bæta við tíðaranda nýfrjálshyggjunnar,
sem minnst var á að framan. Hann er einnig hér að verki. Sögðum við ekki
að hann sliti sundur samhengi tímans?
Jafnaðarmannaflokkur Íslands
Niðurstöður þessarar léttstígu yfirferðar um stöðu stjórnmálaflokka í
álfunni, má einnig heimfæra á þann flokk, sem flestir lifandi leiðtogar
íslenskra jafnaðarmanna höfðu forystu um að stofna – Samfylkinguna.
Eitthvað brást hrapallega. Flokkur sem ekki nær tveggja stafa fylgi í könn-