Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Page 58
Þ ó r u n n J a r l a Va l d i m a r s d ó t t i r 58 TMM 2016 · 2 matvæla, úthafsveiðum og landbúnaði. Evrópa rembdist þess á milli eins og hún gat við að fara í stríð að ná í feng og fækka fólki, með æ betri vopnum, loks byssum og fallbyssum, en sama var hvernig karlmenn kepptust við að drepa hver annan í Evrópustríðum, úr hverri grein sem skotin var af spruttu þrjár nýjar. Þá föttuðu Portúgalar að sigla suður með Afríku að ná sér í feng og Kólumbus rann vestur yfir úthaf og ekki fram af heldur til Ameríku og fyllti Spán af gulli. Þá vaknaði sjúk græðgi og hófst sá viðbjóður er Evrópa lagði heiminn undir sig með purkunarlausu ofbeldi, yfirgangi, þjóðarmorðum og ránum. Heilu menningarsamfélögin voru rústir einar. Endalausar millj- ónir í valnum, sjúkdómar hjálpuðu til. Frumbyggjum Norður-Ameríku var næstum útrýmt. Til að fylla í skarð dauðra Indjána og fá þræla var tólf milljónum Afríkumanna, hér í Gíneu og í löndunum í kringum mig, troðið í þrælaskip. Góða kristna Evrópa kokkaði sér þau fræði að heiðið fólk væri dýr sem kvelja mætti, myrða og fara með að vild. Samt er samtímafólk þriðja heims svo ljúft að smæla til okkar fölskinna sem hættum okkur hingað, vel fjáð, sprautuð, rugluð og sektarkindarleg. Guði sé lof að mannkynssagan er lágt skrifuð og gleymd. Annars væru alvöru hryðjuverk í gangi um allan hinn subburíka hvítheim og þriðji heimurinn krefðist þess að fá bætur fyrir aldalanga nauðgun. Skoðum Tas- maníu, til dæmis. Þangað fóru hvítir Ástralir á skytterí og skutu heila þjóð útdauða. Til að geta gert sér gott af landinu þeirra. Það er sama sagan alls- staðar, nýlendusagan ljótari en nokkur getur hugsað. Í BNA voru 20 dollarar greiddir fyrir höfuðleður á barni. Hvít sekt er þung, fyrir þá sem þekkja söguna og hafa samvisku. Í þessu ljósi, með svona kynþáttar-undirvitund, er eðlilegt að við kveljumst af vellystingum, sílspikuð, þunglynd og vansæl. Eðlilega verður manni bumbult af blóðpyntuðum ránsfeng. Þeir gátu ekki einu sinni gefið innfæddum í BNA orð, hugtak, heldur kalla þá Indverja. Nú eru margir sem hafa sæmileg ráð ferðaglaðir, mannkyn vill hittast og kynnast og renna saman aftur. Skítum út plánetuna og eyðileggjum í leiðinni. Ég reyni að lina flug-samviskubit mitt með því að miðla því sem ég nam í ferðinni. Er gjörsamlega heilluð af Afríku. Kann hér sem annars staðar, stóra barnið sem ég er, að hafa hjartað opið, falla fyrir og hverfa inn og gleyma hver ég er. Það fyllir mig ólýsanlegri lotningu að standa undir tröllstórum kókospálma, snerta hann og líta upp þessa einstöku skepnu jurtaríkis, það finnst varla stærri og glæsilegri lífvera í ríki Flóru. Einskonar gíraffi í ríki Fánu. Ég er í höfuðborginni Conakry, rétt norðan við miðbaug. Næst þegar máni fyllist flýg ég heim. Rafmagnsmengun er lítil hér í höfuðstaðnum, svo að tunglið er fyrirtaks almanak.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.