Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Síða 63
U m s k u r ð u r h u g a r fa r s i n s
TMM 2016 · 2 63
sitja albínóarnir undir sólhlífum, að spóka sig.
Albínóar eru svo algengir hér að ég held að
margir líti fyrst á okkur bleiknefjur og hugsi:
„albínóar?“ en sjái svo við nánari athugun að
við höfum einkenni indóevrópumanna. Fólk er
algjörlega ófeimið við að horfa á mann. Miklar
augnsamræður eiga sér því stað á götum úti, milli
okkar og innfæddra.
Dans, sviti og saga
Við íslenska danssendinefndin búum við munað
en svitnum voðalega á rykugu gólfi bílastæða-
húss og engin leið er að halda sér hreinum.
Saltið frá hafinu klístrast í sólbrunnið hold og
rykið smyrst á. Þar sem við dönsum tvisvar og
stundum þrisvar á dag kostar þetta jafn mörg
dagleg böð, til að ná af sér skítnum. Og lubb-
inn á mér, drottinn minn. Ég á auðvitað að láta
smáflétta hann niður, eins og innfæddar. Sífellt
að bleyta hárið og hemja það með greiðu. En
aðlögun mín að hitabeltinu er að smákoma.
Fólkið hér kann að líta vel út, þolir hitann og
kann að svitna án þess að vera sífellt að þurrka sér með taubleiju, eins og ég
geri eftir hvern danssprett. Er farin að læra að fara út í sólina í pásum, hún
þurrkar fljótt svitann og vatn sparast sem fer í að þvo bleijuna. Allar konur
hér hafa afar snyrtilegt hár, sumar parruk. Stöku listakarlmenn hafa rasta-
dredda, aðrir eru rakaðir eða mjög hárstuttir. Vinur minn, trommarinn
Ballake, sagði mér að konur Fúlaættbálks móður hans séu enn frá fornu fari
með dredda. Leigusalinn okkar vill ekki sjá að dreddaðir trommarar komi
hingað upp og inn, segir meistari Mamady, danskennarinn okkar. Leigu-
salinn er sómakær í islömskum klæðum með kollhúfuhatt og tengir dredda
við eitthvað ljótt, sem ég er ekki alveg að skilja.
Hér rekast kimar á, en friðsamlega helstu trúarbrögðin, islam og kristni.
Moskur og kirkjur eru næstum á hverju horni í hverfinu okkar, í ljúfu sam-
býli. Dýpri línur valda ágreiningi, þetta rugl nýlenduveldanna með landa-
mæri. Frakkar hönnuðu mæri hér í keppni við Portúgala og Breta svo að
landið umfaðmar 25 þjóðir eða tungur. Þjóðarerjur voru hér á átakaárum
fyrir 2010, áður en einræði var afnumið og lýðveldi komst á.
Dýpkum nú flugið, eins og ránfuglinn ofan í dauða ræsisköttinn, og skoðum
sögu Gíneu. Þegar Samori Touré rak Frakka úr landi 2. október 1958 afþakk-
aði hann stuðning franska samveldisins, sem varð afdrifaríkt fyrir sögu