Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Side 133

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Side 133
U m s a g n i r u m b æ k u r TMM 2018 · 2 133 reynslu uppvaxtaráranna. Að mati Kamillu hefur Gústi ekki náð að yfir- vinna reiðina í garð móðurinnar, hann hefur ekki „náð þessari hreinsun og æðruleysi heldur virtist hann sækja í sársaukann“ (51). Kamilla telur hann byggja „sjálfsmynd sína nánast á þessum tregafulla harmleik æskunnar. Það var rauði þráðurinn sem hann spann sögu lífs síns úr“ (51). Þessu fylgir að Gústi, sem sjálfur er giftur og tveggja barna faðir, leggur sig í líma við að halda fyrir- myndarheimili þar sem yfirborðið er slétt og fellt og „allt nýmóðins og flott“ (23) en ljóst er að yfirborðsskurnin er þunn og brothætt. Framan af virðist Kamilla hins vegar búa yfir traustari sjálfsmynd og hafa góða stjórn á lífi sínu sem söngkona og einstæð móðir hins tvítuga Bjarna, þótt fjárráðin séu ekki til að hrópa húrra fyrir. Smám saman kemur þó í ljós að Kamilla er haldin dæmigerðu heilkenni hins vanrækta barns sem leggur mikið á sig til að halda heiminum saman, er mjög umhugað um álit annarra (12), alltaf að hugsa um aðra (33) og að þeim líði vel (57). Hún er sem sagt haldin meðvirkni á háu stigi og meðvirknin leiðir hana jafnvel út í kyn- líf sem hún hefur í raun engan áhuga á, eins og lýst er í einni vandræðalegustu – en um leið tragíkómískri – senu frá- sagnarinnar (114–117). Sálgreinir Kamillu telur að „þar sem henni var í æsku kennt að taka fullkomið tillit til móður sinnar“ hafi hún „þróað með sér þann eiginleika að óttast eilíflega að geðjast ekki öðrum og valda þeim von- brigðum“ (118). Sjálf fellst hún á þessa greiningu og viðurkennir að „[h]elst vildi hún alltaf hafa alla í kringum sig góða og ánægða, einkum og sér í lagi ánægða með hana“ (119). Vísbending um þessi persónueinkenni Kamillu er ef til vill einnig fólgin í nafni hennar en bent er á að Camillus er nafn á verndara altarisins og ambátt helgiþjónustunnar „og einnig þýðir nafnið fullkomnun“ (189). Í yfirfærðri merkingu má sjá Kamillu sem verndara fjölskylduímynd- arinnar sem hún vill upphefja og lag- færa; hafa sem fullkomnasta. Það er þessi þörf sem leiðir Kamillu að lokum út í miklar ógöngur eins og á eftir að koma á daginn. Þegar Kamilla les sendi- bréf móður sinnar, sem hún finnur í vesturför sinni, kemur berlega í ljós að ekki er fullkomlega gróið yfir sár barn- æskunnar. Kamilla hugsar með skelf- ingu til þess að efni þeirra verði opin- berað almenningi í ævisögunni sem list- fræðingurinn Þórey hyggst skrifa í tengslum við sýninguna. Hún veltir fyrir sér hvort réttlætanlegt sé að „und- irstrika gömlu ímyndina af móður hennar sem syndara og óábyrgri glyðru og útsetja hana fyrir enn meiri skömm og vanþóknun?“ (132). Ætti hún ef til vill að halda bréfunum leyndum eða grípa til enn róttækari aðgerða? Móðurlífið Í gegnum sendibréfin gefst lesandanum tækifæri til að kynnast listakonunni Sirrí beint og milliliðalaust. Sú mynd sem dregin hefur verið upp af henni fram að því að bréfin finnast er ófögur en um leið harmræm. Við vitum að hún valdi listina fram yfir fjölskylduna en einnig að hún dó úr ólifnaði, „að þrot- um komin á líkama og sál, þjökuð af sektarkennd og sjálfshatri“ (68). En við vitum líka að listaverk hennar skipta máli í íslenskri listasögu, að hún var frumkvöðull og áhrifavaldur, enda tæki Listasafn Reykjavíkur verk hennar varla til sýninga ef svo væri ekki. Það að list Sirríar „virtist oft hafa stuðandi áhrif á fjölskyldumeðlimina“ (39) skiptir að endingu engu máli í hinu stærra sam- hengi, eins og listfræðingurinn reynir að koma Kamillu í skilning um þegar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.