Ófeigur - 15.08.1950, Page 14

Ófeigur - 15.08.1950, Page 14
14 ÖFEIGUR er að segja um önnur nærliggjandi lönd. Námsfólkið helzt þar ekki við sökum dýrtíðar, sern vanstjórn ís- lenzkra markaðsmála hefur búið þeim. Eina úrræði þess- ara unglinga hefur verið að heimta hærri ríkisstyrk, án þess þó að geta með rökum bent á, að bændur og verka- menn séu aflögufærir í erlendum gjaldeyri. Niðurstað- an hlýtur að verða sú, að meginið af námi fslendinga erlendis leggst niður, meðan ekki rætist fram úr verzl- unarhallæri því, sem þrenning kommúnista, háskóla- manna og „nytsamra sakleysingja“ skapaði þjóðinni með óafsakanlegri glæpsku 1946. Öll þjóðin mun lengi líða þungar þrautir fyrir tiltektir þessara giftulausu banda- manna. Sjálfir rnunu flestir þessir menn, nú orðið, finna þunga misgerða sinna. VI. Breytt viðhorf á f jórum árum. Ég hef dvalizt nokkuð við þessa hlið málsins. Fyrir fjórum árum þóttust andstæðingar mínir þess fullviss- ir, að stefna mín í landvarnar-og viðskiptamálunum væri ekki aðeins röng, heldur stappaði mjög nærri föð- urlandssvikum. Nú þrá hugsandi og þjóðhollir menn á Islandi ekkert meira en að ríkisstjórnin og Alþingi biðji Bandaríkin um þá hervernd, móti innrás landræn- ingja, sem ég var einn um, á Alþingi 1945—46, að vilja þiggja með tilteknum skilyrðum. Jafnframt láta þús- undir Islendinga hugann líða f jögur ár til baka og óska þess heitt og innnilega, að tillaga mín um verzlunar- og viðskiptamálin hefði þá verið gerð að alþjóðarkröfu og framkvæmd. Þá héldu kommúnistar og þeirra fylgis- menn því fram, að nærvera erlendra hermanna á ís- lenzkri grund væri slík þjóðarforsmán, að enginn heið- arlegur maður gæti látið sér koma til hugar að útvega þjóð sinni jafnvel hin beztu viðskiptakjör, ef um leið ætti að semja frelsið og fullveldið af þjóðinni. Nú er svo skipt um aðstöðu í málinu, að meirihluti Islend- inga hefur ekki sofið rólega í hvílum sínum um nætur nema þær stuttu stundir þegar amerísk smáherskip hafa legið hér við land. Hvarvetna af landinu fréttist um vaxandi og réttmætan ugg fólksins við varnarleysi hins vopnalausa hlutleysis. Nú sér alþjóð manna, að ríkisstjórnin verður að biðja Atlantshafsríkin um hervernd á friðartímum. En eins og öllum, sem hugsa

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.