Ófeigur - 15.08.1950, Síða 46

Ófeigur - 15.08.1950, Síða 46
46 ÓFEIGUR á sinni víglínu fyrir land og þjóð. Milli stríðanna kom málið á nýjan grundvöll. Þá var byrjað að treysta á þjóðabandalagið, Locarno-sáttmálann og ýmiskonar friðarsamtök. Stúdentar í Oxford lýstu hátíðlega yfir, að þeir vildu aldrei framar berjast fyrir konunginn og ættjörðina. Þessi Oxford-ályktun var í augum Hit- lers einhver fullkomnasta sönnun þess, að England væri að hruni komið og þjóðin úrkynjuð, úr því að synir leiðtoganna í landinu væru orðnir andvaralausir um frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar. Átti þessi sögulega fundarályktun sinn þátt í að nazistar lögðu út í annað heimsstríðið. Þegar hér var komið sögu, sat Baldwin fastur í sessi sem stjórnarformaður. Mátti segja, að leiðtogar allra borgaraflokkanna væru samsekir um ábyrgðarleysið. Verkamannaflokkurinn hafði forgöngu um undanhaldið, en forkólfar frjálslynda flokksins og íhaldsmenn fylgdu dyggilega í kjölfarið. Frá því að veldi Englands hófst og enska þjóðin tók forystu í heimsmálunum, hafði yfirstétt landsins jafnan lagt höf- uðáherzlu á öryggi þjóðarinnar. Nú var þetta breytt. Barátta um atkvæði fjöldans kom hinum forna yfir- ráðaflokki Breta til að sofna á verðinum. Baldwin verð- ur um allan aldur eitt hið sorglegasta dæmi um flokks- foringja, sem er atkvæðasmali í leit að fánýtum skyndi- völdum, er lætur straum augnabliksins bera sig fram af svarta bakkanum. Sendiherrar og ræðismenn Breta sendu heim ýtarlegar skýrslur til Éaldwins, og síðar til Chamberlains, um hinn tryllta vígbúnað Hitlers, og að nazistar legðu meginstund á að eyðileggja enska heimsveldið og gera Bretland að leppríki Þýzkalands. Allir menn með sæmilega þekkingu, hvar sem var ut- an Englands, sáu glögglega hvað nazistar höfðu í huga, enda væri synd að segja, að þeir væru myrkir í máli um fyrirætlanir sínar eða hina takmarkalausu fyrir- litningu sína á stjórnarformi þingstjórnarlandanna og vinnubrögðum forystummanna þeirra. En ekkert megn- aði að vekja leiðtoga þingstjórnarlandanna. Þeir litu á augnabliksþægindin og atkvæðaveiðar í sambandi við næstu kosningar. I lýðræðislöndum álfunnar var ekki nema einn meiriháttar stjórnmálamaður sem sá hætt- una og skildi hvert stefndi. Það var Churchill. Hann varaði þjóð sína við hættunni, sem vofði yfir Bret- landi og öllum frjálsum þjóðum. Hann talaði um hætt-

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.