Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Blaðsíða 17
Fokk þú og þitt krú tmm bls. 15
„ Rappararnir sættast við rætur sínar og endurskapa þær". Erpur Eyvindarson rappari úr
Rottweilerhundunum í íslenskri sveit.
myndin sé síbreytileg. En hún er einnig brota-
kennd enda lifum við á tímum hnattvæðingar
þar sem ólíkir menningarstraumar renna saman
í einn suðupott.
Svo enn sé vikið að Stuart Hall hefur hann
einnig bent á að sjálfsmyndin tengist ekki síður
sköpun hefðar en hefðinni sjálfri. Með öðrum
orðum snýst sjálfsmyndin um að sætta sig við
og endurskapa rætur sínar fremur en að snúa
aftur til þeirra. Og þá erum við komin að þjóð-
legu rappi.
Rapp í löndum á borð við Frakkland og Dan-
mörku hefur samlagast þjóðmenningunni á
annan hátt en hér á landi þar sem segja má að
myndast hafi séríslensk rapphefð sem hefur
verið tengd gömlu rímnahefðinni. Með öðrum
orðum: rappararnir sættast við rætur sínar og
endurskapa þær.
Þýtt og staðfært: Rímur og rapp
Nú eru rímur og rapp engan veginn nátengd -
a.m.k. ekki við fyrstu sýn. Rappformið er mun
frjálslegra en rímnahættir. Enda þótti mikil íþrótt
f rímnageiranum að kveða dýrt en að sama
skapi þótti efninu stundum fórnað fyrir rímið.
Svo fór að rímur fóru að þykja hallærislegur
kveðskapur og nægir þar að nefna ritdóm
Jónasar Hallgrímssonar um rímur Sigurðar
Breiðfjörð þar sem hann gagnrýndi rímurnar fyr-
ir skort á frumleik og andagift. Rappið er ekki
jafnbundið í form en það er bundið við ákveðna
hrynjandi og textarnir bera þess merki þannig
að setningaskipan og orðaröð kann stundum að
virðast framandi, í það minnsta þegar textarnir
eru lesnir af blaði. Endarím er lykilatriði í rappi
og oft kemur fyrir stuðlun, hún er þó ekki reglu-
bundin.
ég er fyrir löngu orðinn fullorðinn maður /
tuttugu og fimm og ennþá ofverndaður / ég
yrði glaður ef ég fengi að lifa í friði / en því
miður er ég enn í móðurkviði.
(Móri: Hljóðtæknir)
Yrkisefnin minna að vissu leyti á rímurnar; Iftið
er kveðið um háleitar tilfinningar, fagra náttúru
og heimspekileg viðfangsefni - í það minnsta
ekki á yfirborðinu. Fremur státa menn sig af
sigrum í kvennamálum - og öfugt í tilfelli kven-
rappara.
fékk menn til að fara úr svörtum fötum og í
hlýra / ég blæði næsta tekfla / ef þér tekst að
nefna eina flotta kellingu sem ég er ekki bú-
inn að ríða / mínir höstlleiðangrar eru fræknir,
framsæknir / kallaðu það lauslæti / ég kalla
það skyldurækni.
(XXX Rottweiler hundar: Þú skuldar)
Þá leggja menn mikið á sig til að koma höggi á
náungann með því að kveða um hann níð og oft
koma menn og málefni samtímans við sögu.
Að battla þig, ég gæti rústað þér með annarri
/ með rímur Ijótari en klippingar á Adda Fann-
ari / dissa mig, ég rústa þér með móðgunum
í runum / og læt feril þinn vera dauðari en nú-
verandi ferilinn hjá Rokklingunum.
(XXX Rottweiler hundar: Þér er ekki boðið)
þú ert skilgreining hugtaksins að vera mis-
heppnaður / fórst með rímu á frístælkeppni
Tónabæjar og varst samt átbattlaður.
(XXX Rottweiler hundar: Stigið upp)
Og þetta getur líka átt vel við um gömlu rímurn-
ar en meðal algengra yrkisefna þar voru man-
söngvar og níð um náungann. Orðbragðið er
auðvitað orðið óheflaðra enda dægurtónlistar-
mönnum nútímans iðulega umhugað um að
ganga fram af fólki.
En fyrir utan þessi sígildu umfjöllunarefni
dægurmenningarinnar eru frekari tengsl milli
rímna og rapps. Þar vegur kannski þyngst að ís-
lenskir rapparar hafa mjög leitað í brunn rímna-
hefðarinnar, t.d. með því að tala sjálfir um rímur
og að þeir kveði rímur þegar þeir rappa. Sá rapp-
ari sem hefur kannski gengið lengst í beinum
samruna rfmna og rapps kallar sig Sesar A en
hann gaf út fyrstu rappplötuna sem var ein-
göngu á íslensku. Hann hefur kveðið rímur með
Skapta Ólafssyni þar sem Skapti syngur viðlag í
þjóðlegum stíl en Sesar A rappar. Lagið kallast
Púsl sem er viðeigandi heiti þar sem ekki að-
eins fjallar söngurinn um ástarsamband sem
þarf að púsla saman heldur er þarna einnig púsl-
að saman ólíkum hefðum (rímum og rappi) auk
þess sem púslað er saman dægurtónlistar-
mönnum frá ólíkum tímum en Skapti söng dæg-
urlög fyrr á árum, t.d. Allt á floti alls staðar, en
kveður nú rímur.
Þannig er rappið, sem þykir sérlega smart
núna, einkum á meðal yngri aldurshópanna,
orðið beintengt við þá hefð sem löngum hefur
þótt alveg sérlega hallærisleg að mati ung-
menna og hefur helst verið tengd nokkrum
gömlum körlum með sítt skegg sem hittast
einu sinni í viku og kveða rímur. Ýmsar sam-
kundur hafa verið haldnar til þess að styrkja
þessi tengsl, til að mynda á menningarnótt
2002, en þar mátti sjá rímnaþuli á öllum aldri
sýna listir sínar, ungum og öldnum til óblandinn-
ar ánægju.
(slensk nýsköpun
Rappið hefur auðvitað önnur sérkenni sem
tengjast öðrum straumum en rímunum. Til að
mynda hefur rappið haft á sér mikinn ádeilublæ
en textarnir einkennast af vísunum í íslenskt
samfélag og oft harðri gagnrýni. í rappinu má
finna þann harða tón sem oft skortir í nútíma-
stjórnmálum þar sem helst má aldrei orða neitt
hreint út - enda væru menn þá sakaðir um
óábyrgan málflutning. En í rappi hafa menn ekki
áhyggjur af slíku: