Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Síða 19

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Síða 19
Fokk þú og þitt kru tmm bls. 17 Rapparinn Sesar A. Hvar er gróskan? Áhyggjur af íslenskri tungu virðast nánast jafn- gamlar þjóðinni enda er manninum eðlislægt að hafa stöðugar áhyggjur af því að missa það sem hann á. Öll óttumst við að deyja og missa lífið; nýbakaðir foreldrar læðast iðulega inn til barna sinna og hlusta eftir því hvort þau andi enn. Og eignirnar þurfa ekki einu sinni að vera svo verð- mætar. Þegar maður kaupir glænýjan bíl stend- ur maður sig að því að gjóa augunum reglulega út um gluggann til að gá hvort hann sé ekki enn á planinu. Og eins er það með tunguna. Þegar íslendingar áttuðu sig á því að tungumál þeirra var ekki lengur hluti af samnorrænu máli heldur sérstakt og einstakt fyrir þessa litlu eyju byrjuðu áhyggjurnar og enn höfum við þær. Á 18. öld orti Eggert Ólafsson kvæðið Sótt og dauði ís- lenskunnar, hinnar afgömlu móður vorrar í tveimur kvæðum framsett en þar má finna þetta erindi: Fengi eg ærlegt íslenskt mál, eins tilreitt og súpukál, vösk eg mundi verða í stað, væri eg ekki dauð um það, forlög banna, feigðin ef að fer mér að. Og áhyggjurnar héldu áfram. Þegar fyrsta hefti Fjölnis kom út 1835 var fyrsta greinin í blaðinu eftir Tómas Sæmundsson og þar var meðal annars rætt um mikilvægi íslenskrar tungu: Engin þjóð verður fyrri til en hún talar mál út af fyrir sig, og deyi málin, deyja líka þjóðirnar eða verða að annarri þjóð; en það ber aldrei við nema bágindi og eymd séu komin á und- an. Því hróðugri sem (slendingar mega vera að tala einhvurja elstu tungu í öllum vestur- hluta Norðurálfu er ásamt bókmenntum ís- lendinga og fornsögu þeirra er undirstaða þeirra þjóðheiðurs ... Og enn hugsa íslendingar um tunguna. Eg er orðinn svo þreyttur á íslenskum enskurappandi mönnum, það er kominn tími til að þú sjáir að þú átt aldrei eftir að verða frægur í útlöndum, þú talar um bíf en þú gætir ekki einu sinni battlað Greifana, þú ert eins og þú sért með psoriasis því þú getur aldrei meikað það, þú feikar það, eins og Wu-Tang bolir í Jónas á milli, og þegar þú rappar þá get ég þara hugsað um að takturinn fer til spillis, ég tryllist. Að þið haldið að það sé nóg að rappa um „kíp it ríl", tónlist er um hæfileika, en ekki enskuslettur, lífs og fatastíl! (XXX Rottweiler hundar: Við erum topp) Ný sjálfsmynd og ný málstefna Það er kannski til marks um fjölmenningarlega tíma að í texta sem fjallar um að íslendingar eigi ekki að rappa á ensku er fjöldinn allur af ensku- slettum, s.s. að meika það, feika það og svo framvegis. Hreintungustefnan er ekki lengur eina málstefnan sem er rekin á íslandi; ( rapp- heiminum reka menn öflugan áróður fyrir því að kveða rímur á íslensku þó að þriðja hvert orð sé upprunalega enskt. íslenskan er ekki lengur að- eins tungumál heldur menningarheimur og þar gildir líka að rappa um íslensk umfjöllunarefni, íslenskan veruleika og íslensk vandamál. Að- eins þannig er hægt að „kíp it ríl". En í þessum samruna gamals og nýs, hvort sem litið er á tungumálið eða innihaldið felst líka ný sjálfs- mynd þar sem íslenskt rennur saman við útlent og niðurstaðan verður ekki samsuða heldur sér- staða sem ber að gleðjast yfir. Stuðst var við plötur XXX Rottweiler hunda: XXX Rottweiler hundar (2001) og Þú skuldar (2002), og safnplötuna Rimnamín (2002). Ennfremur var stuðst við eftirtaldar greinar: Bauman, Zygmunt: „From Pilgrim to Tourist - or a Short History of Identity"; Frith, Simon: „Music and Identity"; Hall, Stuart: „Introduction: Who Needs 'ldentity'?"; allar í Questions of Cultural Identity. Ritstj. Stuart Hall og Paul du Gay. London, Thousand Oaks og New Delhi, 1996. Katrln Jakobsdóttir (f. 1976) stundar MA-nám í íslensku. Húnr hefur sent frá sér bók um íslenskar glæpasögur: Glæpurirm sem ekki fannsti2001). Grein þessi var upphaflega erindi flutt á málþingi Hollvinasamtaka heimspekideildar Háskóla fslands í Norræna húsinu sem bar yfirskriftina Hvað er að vera Islend- ingur? og var haldið I aprll 2003. Rottweilerhundar og Sesar A. fá bestu þakkir fyrir myndalán.

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.