Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Page 36
Hér gegnir fjölmenningin lykilhlutverki því siðferðisstyrkur jafnréttissinnaða forréttinda- púkans birtist best í fordæmingu hans á þeim sem ekki hafa víðsýni hans til brunns að bera. [ þeirri menningarstyrjöld” sem nú geisar í Bandaríkjunum er víðsýni einmitt heróp fram- sækinna afla í átökum við afturhaldsöfl á svið- um menntamála, kynferðis-, hernaðar- og vel- ferðarmála. Þessi styrjöld er langt því frá út- kljáð, og yfirleitt vegnar hvorugum betur en báðum verr. í hinu nýja elítusamfélagi menntun- ar og viðskipta er þó friðsælt að kalla; þar ríkir hinn rómverski friður fjölmenningarinnar. Jafn- vel íhaldssamasti iðnrekandi verður að leita allra leiða til að hámarka afköst fjölbreytilegs vinnu- afls,12 og óháð persónulegri lífsskoðun er hon- um lífsnauðsyn að halda sig réttu megin víglín- unnar. í þessu stríði gegnir hvítaruslið13 lykilhlutverki - steríótýpa hins fátæka, illa menntaða og þröngsýna hvítingja. Þau viðhorf sem því eru eignuð - forpokaðar hugmyndir um innflytjend- ur, svertingja, samkynhneigða, konur, barna- uppeldi, trúmál og svo mætti lengi telja - eru hin hreina andstæða fjölmenningarstefnunnar. Hvítir fátæklingar eru hins vegar líka óþægileg áminning um þau forréttindi sem elítan nýtur en vildi síður ræða, þeir eru fórnarlömb staðar og stéttar engu síður en aðrir minnihlutahópar. Sá grunur að fordómar og þröngsýni kunni að vera afleiðing nútímahagkerfis fremur en úreltar leif- ar gamla tímans er nánast óbærilegur í samfé- lagi fjölmenningar, og að mörgu leyti best geymdur í hvítu ruslakistunni. Andúð elftunnar á hvítaruslinu er því að sínu leyti friðþæging þeirr- ar nýju yfirstéttar sem á siðferðilega og hug- myndafræðilega erfitt með að njóta forréttinda sinna á kostnað lágstéttanna. Lágmenning og hvítarusl Ótti og viðbjóður hvítu millistéttarinnar gagnvart hvítarusli koma einna skýrast fram í þeirri mynd sem dregin er upp af hvítum fátæklingum í kvik- myndum.14 Sú skrípamynd skýrir greinarmuninn á hvítri millistétt og hvítri lágstétt og gefur í skyn að fátækt sé í grunninn menningarlegt og móralskt vandamál fátæklingsins. Andstyggi- lega rasísk viðhorf hvítaruslsins varpa líka þægi- legum skugga á þann járnharða félagslega veru- leika sem hyglir hærri stéttum samfélagsins á kostnað ýmissa minnihlutahópa. Hvítingjar í sárri fátækt eru líka frábært skotmark, þá má niðurlægja og hæða án þess að vera rasisti.15 Steríótýpa hvítaruslsins er því gagnleg leið til að kenna fátæklingum um fátækt sína og styrkja tilfinningu æðri stétta fyrir menningarlegum og vitsmunalegum yfirburðum sínum.16 Á sama tíma er hugmyndin um hvítaruslið gagnleg í afneitun hvítu borgarastéttarinnar á kynþætti sínum. í regnboga fjölmenningarinnar er hvíta elítan glær, og hugmyndin um hvíta- ruslið firrir hana allri ábyrgð á skoðunum og at- höfnum þröngsýnna, ómenntaðra, hvítra fátæk- linga. Á tímum örrar heimsvæðingar er fjöl- menningarhyggja ekki aðeins framsækin hug- myndafræði, hún er hagfræðileg og pólitísk nauðsyn. Grimmdarleg niðurlæging hvítra fá- tæklinga í kvikmyndum og fjölmiðlum veitir hvítu elítunni aflausn synda sinna og forfeðra sinna - án þess að hún þurfi að gefa eftir þau syndugu forréttindi sem hún fékk í arf.17 Hin sakbitna hvíta borgarastétt er því ekki aðeins að draga mörkin milli sín og hvítra fátæklinga, hún er að draga mörkin milli sín og allra annarra og firra sig ábyrgð á misrétti í samfélaginu.

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.