Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Qupperneq 47

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Qupperneq 47
Villta vestrið á íslandi tmm bls. 45 ingu, svo nokkur eftirlætis yrkisefni bandarískra bókmenntafræðinga séu nefnd. Baðstofur og bókmenntir Ekki þarf mikið hugarflug til þess að sjá samlík- ingu með höfuðskáldi þeirra engilsaxa og forn- bókmenntum íslendinga sem að vísu eru skap- aðar af mörgum meisturum, flestum nafn- lausum. í báðum tilvikum er um að ræða stærstu einstöku dýrgripina í menningararfi engilsaxa annars vegar og norrænna manna hins vegar. ísland á nítjándu öld á það einnig sammerkt með Bandaríkjunum á sama tíma að samfélagið var ekki lagskipt í sama mæli og í Evrópu og lítið bil var á milli afþreyingar og listar. Ennfremur var framboð fremur lítið af nýrri skáldritun framan af af öldinni. (Piltur og stúlka er talin fyrsta nútímaskáldsagan, útgefin 1850). Af þeim sökum var lítið annað að gera en sækja í menningarsjóði fortíðarinnar líkt og gerðist fyrir vestan haf á sama tíma. íslendingar höfðu að vísu ekki mikið af leiksýningum að segja á fyrri tíð, en þeir sóttust samt eftir sögum og upplestri og þeirri þörf svöluðu fornsögurnar vel líkt og verk Shakespeares í bjálkakofum fyrir vestan haf. Raunar má með nokkuð góðum rétti segja að fornsögurnar hafi verið sviðsettar í baðstofunum með rímunum - sagnabálkum í tugum erinda - sem voru kveðnar af kunnáttu- mönnum. Góðir upplesarar og sagnamenn fóru á milli bæja og skemmtu fólki við vinnu sína og voru eftirsóttir líkt og þjálfaðir Shakespeare-leik- arar vestra. íslendingar voru skítugir, lúsugir og fátækir, en á kvöldvökunum fengu þeir að lifa í glæstum norrænum sagnaheimi með sama hætti og leikverk Shakespeares lyftu vesturför- unum yfir eril hversdagsins. Afþreying væri þetta líklega kallað nú á tímum. Norræni sagna- arfurinn var raunar svo inngróinn í þjóðarsálina að fólk í afdölum sem á útnesjum ræddi um fornkappa eins og góðkunningja sína og orti kvæði undir dýrum bragarháttum og gömlum kenningum á milli gegninga. En það sem rak þennan bókmenntaáhuga áfram var fyrst og fremst skemmtanaþorsti og sókn I afþreyingu. Fólkið vildi heyra um svik Hall- gerðar, aflraunir Grettis, stirðlyndi Egils og fláræði Snorra goða með sama ákafa og rúmlega öld síðar var fylgst með fjölskyldulíf- inu í Dallas-þáttunum eða Friends. Ef þeirri spurningu er velt upp hvort íslensk menning hafi orðið lagskipt á nítjándu öld er líklega fátt um örugg svör. Það var þó á þeirri öld sem íslendingasögurnar voru gerðar að opinberu menningarviðmiði - líkt og verk Shakespeares vestur í Bandaríkjunum. Sumir gætu jafnvel freistast til þess að líta á árás Jónasar Hall- grímssonar á rímnaskáldin í 3. árgangi Fjölnis árið 1835 sem tilraun til þess að búa til nýja hámenningu og setja rímurnar niður sem lág- menningu. En þetta er þó varla réttmæt ályktun. Markmið Jónasar var ekki að skipa sjálfum sér né öðrum ofar alþýðunni. Þvert á móti. Ástæðan fyrir því að hann réðst á rímna- skáldin var sú að hann vildi búa til nýja alþýðu- menningu - færa hana til sama horfs og fyrir sexhundruð sumrum. Og það heppnaðist a.m.k. upp að ákveðnu marki. Á nítjándu öld átti sér stað dálítil menningarbylting á íslandi þegar íslenskir endurreisnarmenn - Fjölnissinnar, þjóðernissinnar, hvað sem þeir eru kallaðir - mótuðu nýja þjóðarímynd í mynd gömlu forn- sagnanna. Einn hluti af þessari byltingu sneri að ritstíl og málfari en annar að hreinni þjóðernis- vakningu. Það sem fyrir þeim vakti - og sést vel í kvæði Jónasar um ísland farsældafrón - var að breyta fornsagnalestrinum úr veruleikaflótta i framfarahvatningu. Þannig var sköpuð ný al- þýðumenning þar sem fornsögunum var skipað í öndvegi og ef eitthvað var fengu landsmenn meíri ást á fornsögunum þegar líða tók á öldina. Hins vegar er ekki hægt að segja hið sama um tuttug- ustu öld. Ef til vill voru það svipaðir hlutir sem gerðust í landnemabyggðum Banda- ríkjanna þegar Biblían og Shakespeare sköpuðu eina engilsaxneska menningar- heild þar vestra, en það er önnur saga. Ef til var það á þessum vígstöðvum sem sjálfstæð- isbarátta þjóðarinnar var raunverulega háð en á hitt verður þó að líta að stór partur af þessari menningarpólitík var ekki meðvitaður. Lands- menn höfðu einnig um langan aldur drukkið í sig sjálfstraust úr íslendingasögunum og þóttust þess fullvissir að hvaða vaðmálsklæddur sveita- maður sem væri jafnaðist á við strokna borgara eða aðalsmenn úti í heimi. Það var síðan þessi drýldni landsmanna - sem útlendingum finnst annaðhvort sjarmerandi eða hreint og beint óþolandi - sem varð hornsteinninn að fullveldi Íslendínga sem vér þekkjum nú. Enginn þurfti að skýra það út fyrir landsmönnum hvað full- veldi hefði í för með sér, því fólk hafði lesið fjölda bóka frá tfmum þjóðveldis. Enginn þurfti heldur að halda langa málfræðifyrirlestra yfir íslenskri alþýðu um endurreisn íslenskunnar, því málfar Snorra Sturlusonar var henni enn tamt á tungu þótt menntamenn og embættismenn töl-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.