Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Page 49
Villta vestrið á Islandi tmm bls. 47 á öðru völ og galdrar nútímamatvælaframleiðslu með fitu og sykri voru ekki enn komnir fram. Þeir sem hins vegar borða hollustufæði nú á tímum gera það vegna þess að þeir hafa tekið um það meðvitaða og upplýsta ákvörðun. Lausnin við offituvandamálinu felst ekki aðeins í fræðslu heldur fremur í því að breyta matar- menningunni til betri vegar. Og hið sama gæti átt við um bókmenningu landsins. Þeir sem lesa fornsögurnar nú á tímum gera það af með- vituðum ástæðum en ekki af þeirri ástæðu einni saman að þeir vilji svala hungri eftir afþreyingu. En næg völ er á ódýru skyndibitafæði fyrir hina. Oft er því haldið fram að hámenning hafi látið undan síga fyrir lágmenningu eða skemmtana- iðnaði sem er rekinn áfram af markaðsöflunum. í því samhengi er yfirleitt talað um „markaðinn" sem sjálfstæða veru sem komi andstyggilegum gróðasjónarmiðum til leiðar. Orðið markaður þýðir þó aðeins svæði sem hefur verið markað af til kaupskapar og er sú merking enn rétt á okkar tímum. Innan markaðanna er síðan fólk. Orðið markaður í eintölu er aðeins annað orð yfir íslensku þjóðina þegar hún kaupir eitthvað og selur. Það er því ekkert markaðnum að kenna í sjálfu sér. Hann er aðeins spegill þjóðfé- lagsins og hefur sama bókmenntasmekk og þjóðin sjálf. Þetta þýðir einfaldlega að markað- irnir endurspegla aðeins þá hugarfarsbreytingu sem þegar hefur átt sér stað. Ef bandarískur almenningur hefði raunverulega áhuga á verkum Shakespeares stæði ekki á skemmt- anaiðnaðinum að koma þeim til skila. Þetta leiðir hugann að því lögmáli að góðar bók- menntir verða alltaf fyrst metnar vegna þess að þær eru skemmti- legar. Skáldin gegna hér lykilhlut- verki, en þau eru aflvana nema þeim heppnist að ná athygli þess mikil- væga fólks sem hefur það auknefni að kallast venjulegt. En venjulegt fólk tekur aðeins við skemmtilegum bók- menntaverkum og hatar alla tilgerð. íslendingasögurnar höfðu gifurleg áhrif á íslenskt samfélag á nítjándu öld - hvort sem átt er við menningu eða pólitík - vegna þess að þær voru sameign alþýðu og menntamanna með sama hætti og Shakespeare í villta vestrinu. Líklega mátti segja hið sama um bækur Halldórs Laxness um miðja öldina, enda ferðaðist hann um landið með vasabók þar sem hann skráði hjá sér tal alþýðu- fólks er hann varð vitni að. Verk hans voru umdeild en þjóðin las þau. Laxness var fyrst og fremst skemmtilegur sagnamaður líkt og hinn nafnlausi höfundur Njálu og hinn nafnkunni Shakespeare frá Stratford. Verkefni Fjölnissinna með endurreisn íslensk- unnar á grundvelli fornsagnanna er ekki eina dæmið um hvernig skáld hafa getað búið til nýja alþýðumenningu í ákveðnu augnamiði. Laxness og aðrir rauðir pennar höfðu það markmið um miðja tuttugustu öld að færa stéttabaráttu og kommúnisma til þjóðarinnar. Það heppnaðist reyndar býsna vel og mun betur en annars staðar á Norðurlöndunum þar sem kommún- istaflokkar áttu fremur erfitt uppdráttar. Vitan- lega líta þessar pólitísku skoðanir sem var laumað ofan í landsmenn fremur herfilega út nú á tímum, en bókmenntagildi þessarar rauðu alþýðumenningar er hins vegar fremur mikið. Raunar er svo komið að bestu rauðu pennunum hefur verið lyft á stall hámenningar fyrir ofan alþýðuna. Þannig er næsta líklegt að hin opin- bera tilbeiðsla á Halldóri Laxness - sem nú er að komast í móð - muni jafnframt gera verk hans fjarlæg og óárennileg fyrir venjulegt fólk sem óttast að fá harðlífi af neyslu slíkra gull- korna sem bækur nóbelsskáldsins eiga að geyma. Sú þróun hefði líklega verið verulega á móti vilja hans sjálfs svo mjög sem hann sóttist eftir því að hafa raunveruleg áhrif um sína daga. Vinsældir Shakespeares í villta vestrinu sýna vel að list og skemmtun getur hæglega verið eitt. Og það er merki um fordóma nútímafólks að geta ekki hugsað sér kúreka njóta leiksýn- inga í stað þess að drekka og slást. Ennfremur hættir nútímafólki til að gera of lítið úr forfeðr- um sínum í moldarkofunum sem voru þrátt fyrir allt betur bókmenntaðir en helftin af þjóðinni er nú, þrátt fyrir að hafa aldrei farið í skóla. Hvorki fátækt, erfiðisvinna né skortur á formlegri skóla- göngu þarf að tákna menningarleysi. Þvert á móti. Listir eiga ekki að vera eitthvað sem fólk getur aðeins notið eftir langan undirbúning og skólagöngu og eru það ekki í raun og veru. Alþýðan býr yfir sköpunargáfu sem skortir oft á hærri stöðum. Og þegar alþýðulist er gerð að hámenningu er oft sem hún verði að steini - klassík - sem ekki er lengur ætluð til gamans nema fyrir fáa útvalda. Aftur á móti getur al- múginn oft verið ansi vegalaus og villst með sköpunargáfuna í lítilsiglda hluti ef hann hefur ekki stefnumið af bókmenntaarfleið eða menn- ingarvitum þjóðarinnar. Hér verður að ríkja jafn- vægi í anda þess sem Jónas Hallgrímsson talaði fyrir á sínum tíma og var grundvöllurinn fyrir menningarbyltingu Fjölnissinna og tilvist ís- lenskrar menningar eins og vér þekkjum hana nú. Heimildaskrá Barzun, Jacques. Fram Dawn to Decadanœ: 500 Years of Western Cultural Life. New York, 2000. Bloom, Harold. Shakespeare: The Invention of the Human. New York, 1998. Buruma, lan. Anglomania: An European Love Affair. NewYork, 1998. Guðjón Friðriksson. Með sverðið í annarrí hendi en plóginn í hinni: Saga Jónasar frá Hriflu. Reykjavík, 1991. Levine, Lawrence. Highbrow/Lowbrow: The Emer- gence of Cultural Hierarchy in America. New York, 1990. Tocqueville, Alexis. Democracy in America [1835- 1839]. Þýðing: George Lawrence, Baltimore, 1966. Ásgeir Jónsson (f. 1970) er doktor [ hagfræði og starfar sem sérfræðingur á Hagfræðistofnun Háskóla fslands.

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.