Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Qupperneq 52

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Qupperneq 52
breskri lista- og bókmenntahreyfingu sem var áberandi á síðasta áratug 19. aldar, einkunnar- orð þeirra sem aðhylltust hana var „List listar- innar vegna") og úrkynjun aldamótanna 1900. Það er því ekki skrýtið að sú saga hafi flogið fjöllum hærra að Gorey væri breskættaður. Hann ferðaðist hins vegar aldrei lengra en til Orkneyja, því eins og sérvitringa er oft siður leið honum best heima hjá sér. Bækur Goreys eru illflokkanlegar, en eiga það flestar sameiginlegt að hafa yfirbragð barna- bóka, þó að innihaldið sé oft á skjön við það sem gengur og gerist í bókum fyrir börn. Dæmi um þetta er bókin The Gashlycrumb Tinies sem er sett upp eins og nokkuð hefðbundið stafrófs- kver, þar sem hver bókstafur vísar til nafns á barni. Svo skemmtilega vill til að hvers barns er minnst á dauðastundinni, í flestum tilvikum rétt áður en dauðann ber að: „A is for Amy who fell down the stairs, B is for Basil assaulted by be- ars, C is for Clara who wasted away ..." o.s.frv. Myndirnar eru meginatriðið í bókinni, hverjum bókstaf fylgja myndir, sem eru í flestum tilvik- um sárasaklausar, þar sem barnið er ekki með- vitað um að dauðastundin er í þann mund að renna upp eða nýafstaðin. Samspil mynda og texta er oft flókið og mun óræðara en þetta dæmi gefur til kynna. Myndin getur verið kald- hæðin gagnvart textanum, og myndað þannig undirliggjandi samband sem ekki er á færi barna að skilja til hlítar. (Að minnsta kosti ekki allra barna. Auðvitað ber að varast að gera lítið úr möguleikum barna til að skilja kaldhæðni og tví- ræðni.) Óhugnaðurinn í verkum Goreys felst ekki síst í því sem ímyndunaraflinu er látið eftir. Hið ósagða vegur þungt, og krefst þó nokkurs af lesandanum. I barnabókum er framsetningin á tungumálinu oft afar skýr og tengsl textans við myndskreytingarnar augljós. Myndabækur krefjast í raun alltaf mikils af lesendum sínum, hvort sem þær eru ætlaðar börnum eða full- orðnum, eðli málsins samkvæmt, þar sem ætl- ast er til þess að lesandinn brúi bilið milli mynd- ar og texta. Hinar tvíræðu teikningar Goreys flækja enn frekar sambandið milli táknmyndar og táknmiðs. Að skera sig úr Annað dæmi um bók af þessu tagi er The Melancholy Death of Oyster Boy and Other Stories eftir kvikmyndagerðarmanninn Tim Burton, en hann er höfundur bæði mynda og texta. Bókinni svipar til bóka dr. Heinrichs Hoff- manns að því leyti að hún er í bundnu máli og hver saga segir frá hrottalegum örlögum barns. Efnistök eru þó gjörólík; hér er ekki um neinn siðaboðskap að ræða. Börnin í The Melancholy Death of Oyster Boy falla að vísu ekki að við- teknum hugmyndum um fyrirmyndarbarnið, frekar en börnin í sögum dr. Hoffmanns, en hér er það ekki vegna eigin misgjörða, heldur eru þau á einhvern hátt fædd öðruvísi. Líkami þeirra er ekki eins og hann á að vera (Mummy Boy er múmía, Melon Head hefur melónu í stað höf- uðs o.s.frv.), þau haga sér öðruvísi en annað fólk, og iðulega er öllum illa við þau, ekki síst foreldrum þeirra, sem áttu von á einhverju hefð- bundnara. Þau eru á skjön við allt og alla og sag- an endar oftar en ekki með dauða þeirra. Titilsagan, sem segir frá dapurlegum örlögum ostrustráksins, er ágætis dæmi. Foreldrar drengsins gifta sig í kirkju við sjávarsíðuna. Að kvöldi brúðkaupsdagsins borða þau mikla sjáv- arfangsmáltíð, en meðan á henni stendur óskar brúðurin sér þess að verða ófrísk hið fyrsta. Svo verður, og ostrustrákurinn fæðist, hann er venjulegur strákur að öllu leyti, nema hvað höf- uð hans er risastór ostruskel, og af honum er megn sjávarlykt. Foreldrarnir geta ekki sætt sig við þennan óhefðbundna son, og endurspeglast biturleikinn meðal annars í því að faðirinn hætt- ir að standa sig í rúminu. Hann fer til læknis, sem bendir honum á meintan lostavekjandi og kynorkuaukandi áhrifamátt ostrunnar. Það vill svo vel til að ostra er innan seilingar, og kvöld eitt opnar faðirinn höfuð sonarins með hnífi og drekkur innihaldið. Sonurinn deyr en faðirinn hefur endurheimt kynorku sína, hjónin geta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.