Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Síða 62

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2003, Síða 62
Þorleifur Hauksson Stílfræði skáldsagna Þegar þetta er ritað er bókin Sagnalist að fara í prentun. Bókarheitið er stutt en undirtitilt þeim mun lengri: íslensk stílfræði II - Skáldsögur 1850-1970. Þetta er sem sé stílsaga skáld- sagnaritunar fram yfir miðja síðustu öld og byggist á hugtaka- og aðferðagrunni sem lagð- ur er í Islenskri stílfræði okkar Þóris Óskarsson- ar sem út kom 1994. Bókin er eigi að síður sjálf- stætt verk. I atriðisorðaskrá eru öll helstu hug- tök skýrð þannig að ekki þarf að hafa hina bók- ina við höndina við lestur þessarar. Fteynt hefur verið að hafa bókina sem aðgengilegasta öllum áhugamönnum um þókmenntir, mál og stíl, án þess að slaka á fræðilegum kröfum. Þetta er ekki ein af þeim þókum þar sem sett er fram einhver kenning eða tilgáta sem síðan er annaðhvort sannprófuð eða hrakin, heldur mótast viðfangsefnið jafnharðan eftir því sem sagnalistin gefur tilefni til. Tekið er nokkurt mið af bókmenntaumræðu samtímans, ritdómum og greinum í tímaritum sem snerta ritstfl, af skrifum höfundanna sjálfra um eigin verk og viðtölum við þá þar sem slíkt hefur fundist og komið að gagni. Bókin fetar sig eftir þessum 120 árum skáld- sögunnar fyrst og fremst með greiningum á einstökum verkum. Það helsta sem tekið er til skoðunar í skáldsagnagerðinni er: Orðaval (t.d. gildishlaðin orð), málsnið (þ.á m. talmál og rit- mál, hátíðlegt mál eða hversdagslegt), máls- greinagerð, miðlun tals og hugsunar, stílbrögð og myndmál, frásagnargerð, sögumaður og sjónarmið eða sjónbeining, persónulýsingar, náttúrulýsingar, skírskotanir til annarra texta, þ.á m. skopstælingar. Það er misjafnt hver þessara atriða eru tekin til umfjöllunar í hverri skáldsögu fyrir sig. Ég reyni líka að sneiða hjá of smásmugulegum stílgrein- ingum - markmiðið er að opna skáldverkin betur fyrir lesendum og skoða þau í heildarsamhengi annarra texta, ekki tæta þau niður í smáeindir. Einhver kann að spyrja eftir þessa upptaln- ingu hvað sé eiginlega eftir fyrir önnur fræði að fást við. í sjálfu sér bannar ekkert öðrum fræð- um að skoða þessi atriði af sínum sjónarhól. En stílfræðin er þverfagleg grein. Hún liggur á mörkum málvísinda og bókmenntafræða og tekur yfir skika frá hvorum tveggju, auk þess sem hún á rætur í mælskufræðinni og hugtaka- forðinn að hluta þaðan runninn. Henni er þannig ekkert mállegt óviðkomandi. Varðandi afmörkun gagnvart t.a.m. frásagnarfræðum bókmennt- anna má vitna í Ullu Albeck í bókinni Dansk stil- istik: „Svið stílfræðinnar er ekki mannlýsingar, atburðarás, náttúrulýsingar, hugmyndaheimur, lífsskoðanir o.s.frv., heldur málleg tjáning alls þessa."' Þegar verið er að meta stíl bók- menntaverka er auk þess óhjákvæmilegt að taka með í dæmið grundvallarhugtök frásagnar- háttarins eins og sögumannsaðferð og sjónar- mið. 'Fyrsta skáldsagan' Bókin fjallar um íslensku skáldsöguna frá upp- hafi skáldsagnagerðar að evrópskri fyrirmynd. Fræðimenn hafa reyndar ekki verið á einu máli um hvaða saga eigi að teljast 'fyrsta íslenska skáldsagan'; til að mynda má með vissum rétti segja að Grettis saga skipi það heiðurssæti. (/s- lenskri stílfræði (1994) er mismunandi gerðum texta og sagna á öllum öldum gerð skil, allt fram á 20. öld. í samhengi þessarar bókar þótti rétt að byrja á Pilti og stúlku Jóns Thoroddsens og sögulegum skáldsögum Torfhildar Þorsteins- dóttur Hólm. Eitt af því sem er forvitnilegt við sögur Jóns Thoroddsens eru textatengsl í ýms- ar áttir, t.d. við íslendingasögur og stórkarlaleg- an ýkjustíl riddarasagna og rímna. Málsnið í

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.