Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 8

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 8
Gerður Kristný ályktun að Halldór hafi legið mikið yfir henni. Samt er greinilegt að hann hefur lesið hana því hann hefur strikað undir á einum stað með sama bleki og hann skrifaði nafnið sitt. Það er setning í 21. kafla sem hefur vakið athygli hans en kaflinn heitir Piskning som aphrodisisk Læge- middel. Þar er sagt frá ýmsum þjóðum, s.s. Rómverjum, Grikkjum og Rússum, sem fínnst fátt jafnæsandi og að láta píska sig duglega og sagt að nú séu slíkar barsmíðar aðeins notaðar í læknisfræðilegum tilgangi, þ.e.a.s. til að auka getu karlmanna. Síðan er kennt hvernig eigi að beita vendinum og bent á að betra sé að nota birkihríslu en písk með leður- reimum því þær skerist of djúpt ofan í holdið, og skulu höggin látin dynja á hrygg, lendum og sitjanda. Fyrst skal slegið laust en smám saman auka kraftinn og loks slá eins fast og óskað er eftir. Fullyrt er að best sé að láta berja sig að loknu baði því þá sé húðin viðkvæmari en ella og heppi- legast sé að konur haldi um vöndinn til að karlarnir fái bæði líkamlega og andlega örvun. Setningarnar sem Halldór hefur strikað undir óstöðugri hendi er að finna í málsgrein þar sem sagt er frá því að Klemens páfa VI hafi blöskrað pyntingafysn kaþólikka og loks bannað vandarhögg. Þær eru á þessa leið: „Hvað sem öðru líður gæti maður næstum því haldið að þeir sem einu sinni hefðu fengið að kenna á svipunni gætu ekki án þess verið úr því að barsmíðarnar héldu áfram í leyni þrátt fyrir endurtekin bönn.“ (Bls. 198) Um það bil áratug síðar var Halldór kominn til Bandaríkjanna, eins og Halldór Guðmundsson sagði frá í síðasta hefti Tímarits Máls og menn- ingar, þar sem einnig voru birt drög að kvikmyndahandriti skáldsins „um lífið við sjávarsíðuna á !slandi“. Þar eru komin frumdrög að skáldsög- unni um Sölku Völku. Þrjár uppástungur um nafn á myndina komu til greina: Salka Valka, Kona í síðbuxum og íslenska svipan. Og svipa kemur svo sannarlega við sögu því þar er sagt um Arnald, sem heitir reyndar Arnold í kvikmyndahandritinu: „Hann á þrjá íslenska hesta og fagra svipu. Það er stolt hvers íslensks hestamanns að eiga listilega gerða ís- lenska svipu.“ Síðan tekur við æsandi söguþráður þar sem kvalafullar ástríður gjósa upp í sögupersónum, kryddaðar með afbrýðisemi, reiði og minnimáttar- kennd. Af slíkri blöndu hlýst auðvitað aðeins eitt, fólk reynir að nauðga hvert öðru. Handritið endar síðan á eftirfarandi hátt: Þá kemur hún auga á fögru íslensku svipuna hans á veggnum. Hún tekur hana niður, snýr sér að gamla manninum og segir: „Hvað ég ætla að gera? Ég ætla að vera í þessu húsi þangað til eigandi þess kemur og rekur mig út með þessari svipu.“ 6 TMM 2004 • 2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.