Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 87

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 87
Störa bollan þjöppun eignarhalds - m.a. á fjölmiðlum - og hringamyndun eru lesin í ljósi þessarar þagnar og litin hornauga. Hverjum var Morgunblaðið að þóknast með þessu, Davíð Oddssyni eða lesendum sínum? Þessi þrúgandi þögn heltók síðan alla fjölmiðla landsins: enginn hafði dug í sér til að fjalla um málið af viti. Þetta kemur vissulega á óvart: fréttin er einstök og stór - en málið er aldrei klárað. í þeirri kosningabar- áttu sem fylgdi var málið heldur ekki rætt heldur létu menn eins og ekk- ert hefði í skorist. Hannes Hólmsteinn Gissurarson orðaði alvarleika þessa máls á eftirfarandi hátt: Þetta er stóralvarlegt mál. Einn ríkasti maður landsins ætlaði að reyna að kaupa forsætisráðherrann, og þegar það tókst ekki, einsetti hann sér að reyna að koma honum frá völdum og notar leynt og ljóst til þess auð sinn og áhrif. Þetta er ekki aðeins aðför að Davíð Oddssyni, heldur að stjórnskipan landsins. („Aðför Ingi- bjargar og Baugsfeðga að Davíð“, Mbl. 6. mars 2003). Fyrir nú utan þá merkilegu staðreynd að Hannes Hólmsteinn lýsir hér mætti auðvaldsins með orðalagi sem vinstri armur Vinstri grænna gæti verið stoltur af, þá er dramað sett í merkilegt samhengi: aðför auðmanna að stjórnskipun ríkisins. Af hverju varð þessi aðför ekki að kosningamáli? Hvers vegna ályktaði ekki Sjálfstæðisflokkurinn um málið? Var ekki mik- ilvægt að hrinda aðförinni? Hvers vegna skrifaði Morgunblaðið ekki leið- ara um málið? í stað þess að ræða þá alvarlegu stöðu sem upp var komin kaus Sjálfstæðisflokkurinn að þegja um málið, sem telja verður undarleg viðbrögð. Hvernig Sjálfstæðisflokkurinn tók á þessu er í engu samræmi við stóryrðin sem notuð voru þegar ásakanirnar voru kynntar til sög- unnar. Ekki þarf mikið ímyndunarafl til að sjá að jafn eldfimt mál og þetta hefði hlotið aðra meðferð erlendis. Vikum saman hefðu dagblöð og aðrir fjölmiðlar velt hverjum steini í lífi Hreins Loftssonar og forystumanna Baugs - auk þess að grandskoða Davíð Oddsson og hans feril. Frétta- blaðið og tengsl þess við Baug er efni sem aðrir fjölmiðlar hefðu átt að sýna meiri áhuga. Hér er af nógu af taka. Af hverju var Hreini Loftssyni svo brugðið eftir fundinn í London að hann lét gera ráðstafanir innan fyrirtækisins? Var það ímyndun ein sem réði för, hræðsla án nokkurrar fýrirliggjandi ástæðu? Hreinn þekkti Davíð, um það verður ekki deilt, og því vafasamt að hann hafi einfaldlega farið á taugum. Var Hreinn háður Baugi? Var frásögn Fréttablaðsins af stjórnarfundi Baugs efnislega rétt? Við þessu fengust engin svör. Andstaða Davíðs við Baug og gagnrýni á fyrirtækið, m.a. vegna matvælaverðs, átti sér auðvitað forsögu sem vert hefði verið að gera grein fýrir. En enginn gerði sér far um að rekja þessa TMM 2004 • 2 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.