Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 67
Tunglskinsmjólk Að minnsta kosti ekki skáld eins og Dagur. í bók sinni um Arthur Rimbaud, The Time of the Assassins, rekur Henry Miller afdrif skáldsins. Skáldið er vera úr fjögurra vídda heimi sem er dæmd til að lifa í veröld með þremur víddum. Hún lifir í heiminum en er ekki heimsins. Köllun hennar er að seiða menn til að skynja hversu heimur þeirra er takmarkaður. En aðeins þeir fylgja kallinu sem þegar hafa lifað til fulls og tæmt alla möguleika þriggja vídda heimsins. Eins og Rimbaud risu öll mestu skáld og hugsuðir á 19. öldinni gegn borgaralegri tilveru, þæginda- og efnisdýrkun hennar, heimsku hennar og rangsleitni. En samtími þeirra taldi þau vera haldin djöfullegum anda. Þetta voru menn eins og Nietzsche, Strindberg, Dostojevsky. Að ekki sé talað um kvenskáldin sem sífellt hafa þurft að berjast gegn útsmoginni viðleitni til að takmarka svigrúm þeirra og frelsi. Sum skáldin hafa flúið hina slítandi baráttu inn í heim nautnasýki og svæff fegurðarþrá sína með deyfilyfjum af ýmsum gerðum, en náð samt að vinna merkileg af- rek. Önnur hafa búið um sig í öðrum heimum innri útlegðar, ósýnileg öllum. Dagur veit að hann verður að verja frelsi sitt hatrammlega: frelsi fyrir útgefendum, fyrir ritdómurum, fyrir fjölmiðlum, fyrir slúðurmaskínu hins fámenna, íslenska samfélags. Frelsið verður honum æðsta takmark og keppikefli í lífinu. Og það verður honum jafnframt mesta áþján. Hann var af þeirri tegund skálda sem líta á listina sem sína einu köllun sem tekur til allra hluta, skálda sem spyrja eilíflega spurninga, sem gagnrýna allt. Hann kemur í því tilliti í beinni línu frá frönsku skáldunum Bau- delaire og Rimbaud og hlýtur að lenda í gagngerri uppreisn og andstöðu við borgaralegt samfélag um miðja tuttugustu öldina. „Nútildags“ heitir sú menning þar sem snákurinn, ljónið og örninn lenda í sirkustjaldinu; uxinn, laxinn og villisvínið í niðursuðuverksmiðjunni; skeiðhest- urinn og mjóhundurinn á veðhlaupabrautinni og lundurinn helgi í sögunarverk- smiðjunni. Þar sem litið er niður á tunglið sem útbrunninn fylgihnött jarðar- innar... [og] þar sem næstum allt má kaupa nema sannleikann og alla nema sannleiks-hundelt skáldið... Hvernig leyfi ég mér, muntu segja, að vara þig við því að tunglgyðjan krefur þig annaðhvort um allan tíma þinn eða engan? Dagur hlýddi kallinu sem fólst í þessari áskorun Roberts Graves í formála að The White Goddess, þrátt fyrir dauðaskammtinn af lífi sem það færði honum. Sagt er að hann hafi rammað inn síðasta launaseðilinn sinn. Henry Miller gagnrýnir Rimbaud fyrir að krefjast ótakmarkaðs frelsis án þess að axla ábyrgð þess og bendir á að menn vinni sér það inn smám TMM 2004 ■ 2 65
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.