Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 31

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 31
Dulmagn Vigdísar Allar sögupersónurnar sem hér eru kynntar til leiks koma við sögu strax í Frá ljósi til ljóss. Og um leið og þroskasaga Rósu er þungamiðja þessa fyrsta hluta þríleiksins þá er fjölskyldutré hennar lýst af nákvæmni að íslenskum sið. Hún er dóttir norræna sveimhugans Lenna og Magdalenu sem deyr við barnsburð. Sameiginlegur vinur foreldranna, Róbert, tekur þátt í því ásamt föðurnum að skapa um Magdalenu draumkennda ímynd veru sem allt skynjar og skilur; einhverskonar álfkonu sem hefur djúpstæð áhrif á líf Rósu. Á fO ára afmæli hennar kemur að fyrstu kveðjustundinni: „Þegar ffá öllu var gengið og Róbert og Helena voru flutt heim til Rósu lagði Lenni af stað að leita hamingjunnar.“ (34) Stúlkan segir fátt og „grét ekki þegar Lenni fór í burtu“ (35), en hugsar með sér: „Góða ferð til Rósu Cordovu, pabbi minn, við sjáumst örugglega seinna.“ (35) Sú verður líka raunin, en ekki fyrr en mörgum árum seinna og ekki fyrr en lesandinn hefur fylgt Rósu um ævintýraheim unglingsáranna, í gegnum kynni hennar af dul- magni ástar og kynlífs sem endar með því að hún eignast barn með fóstra sínum sem við lærum síðar að er í raun og veru faðir hennar. En það eru fleiri áhrifavaldar í lífi Rósu en Lenni, Róbert og Magda- lena og þá sérstaklega vinkonan sem hún kallar Lúnu. Lúna býr í hverf- inu, gengur í sama skóla og þolir ekki ímyndunarveiki (46), þó líf hennar sé eftirmynd af lífi mexíkóska málarans Fridu Kahlo. Hún er hölt eins og Frida, hún er með samvaxnar augabrúnir eins og Frida og hún málar myndir sem menn tóku „fljótlega eftir að [...] minntu ónotalega á myndir Fridu Kahlo. Kennararnir bentu henni því góðfúslega á að eftir- hermur gengju aldrei“ (110). Frjótt ímyndunarafl vinkvennanna glæðir textann lífi sem ekki er algengt í íslenskum bókmennum samtímans, nema ef vera skyldi í fyrri verkum Vigdísar Grímsdóttur.' En tilvera vin- kvennanna er íslensk, hún er reykvísk og hún er raunveruleg og jarð- bundin. Jafnvel þegar Rósa heyrir svarta dúfu segja: „ - Ég mun sannar- lega koma þér á óvart“ (64) og þegar henni fannst „bragð af andardrætti sínum og lykt af minningunum“(78) við meydómsmissinn, þá er það frjótt og óbeislað ímyndunarafl unglingsins en engin dulin öfl sem stjórna því. í leit sinni að fyrirmyndum og að svörum um framtíðina leggst hún yfir dagbók móður sinnar og spáir í spil. Hún rennir „fingr- unum yfir röðina þangað til hún fann hita streyma upp frá ákveðnum stað. Þá skellti hún fingri á spil og dró úr röðinni hina bláu rós um- burðarlyndisins“(102). Stelpurnar láta spilin og önnur hefðbundin hjálpartæki unglingsstelpna á íslandi segja sér fyrir um ókomna tíð en taka um leið af skarið í eigin málum. Þær ráða ferðinni í samskiptum sínum við aðra, hvort sem um er að ræða fullorðna eða æskuástirnar, bræðurna Bláan og Brúnan, sem þær nefna svo eftir augnalit þeirra. TMM 2004 • 2 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.