Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Qupperneq 48

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Qupperneq 48
Böðvar Guðmundsson „For the kids,“ segir hermaðurinn og kveður að hermannasið. Svo hverfa þeir út í myrkrið. „Það sem þeim ekki dettur í hug,“ segir Jóhannes þegar þeir eru horfnir út um lágar fjósdyrnar. „Við verðum að passa að krakk- arnir séu ekki að fíkta í ljósinu.“ Afleiðing þessarar heimsóknar er blátt bann við þeim ágæta leik að kveikja og slökkva á víxl. Það skilja allir nema óvitar sem verður að gæta sérstaklega þegar fer að rökkva. Samt er það töluvert ævin- týri að bíða rökkursins næstu daga því ljósið er svo gott. Svo hægir tíminn aftur á sér, stendur loks kyrr. Stundum er gola og ljós, stundum er logn, þá er líka ljós en þarf að spara því geymarnir geyma ekki lengi. Stundum er rok og þá snýst vængur rellunnar með þvílíkum djöfulgangi að allt ætlar um koll að keyra og Jóhannes hangir í rellustrengnum og tekst með hörku að lerækja honum á sex- tommuna. Stundum er snjór, stundum er rigning og dagarnir eru svo hver öðrum líkir að það er óþolandi og óskandi að eitthvað gerð- ist. Draugar og mannætur láta ekki á sér kræla innandyra eftir að rellan kom, en í útihúsum og kofum er allt við það sama, sæktu fýrir mig, sæktu, sæktu. Úti eru steypiflugvélar og ísbirnir sem fyrr. Einn morgun er allt grátt, svellbunkar á túni, rok og rigning. Það er enginn litur lengur til. Út um gluggann sér í ána, hún er grá, snjólausar malareyrarnar eru gráar, túnið er líka snjólaust og grátt, fjöllin og jöklarnir í austri eru horfnir í grá ský. „Déskoti sem hann spáir illa,“ segir Jóhannes við Sólu, sem er að sjóða vatn í gríðarstórum potti á eldavélinni og ætlar að þvo þvott. „Þú þurrkar þetta varla í dag, elskan mín,“ segir hann svo og bendir á óhreinatausbunkann. „Viltu ekki bíða að hann stytti upp.“ Það vill Sóla ekki. „Það styttir alltaf upp þegar ég hengi út þvott- inn,“ svarar hún og er bjartsýn. „Ég held bara að hann sé að ganga upp í rok,“ segir Jóhannes. „Þeir eru vondir útmánaðalandsynningarnir.“ Það er rétt sem Jóhannes segir. Hann er að ganga upp í rok. Það gnestur í húsinu og laus járnplata á fjósþakinu byrjar að lemjast. Jóhannes fer út og ber á hana grjót. „Það er að verða óstætt úti,“ segir hann þegar hann kemur inn aftur. „Ég held bara þú ættir að slökkva á eldavélinni meðan rokið gengur yfir.“ 46 TMM 2004 • 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.