Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 58

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 58
Berglind Gunnarsdóttir í Rógmálmi og grásilfri er að finna ástarljóðin um Möggu: Þú sem læðist framogaftur um drauma mína og skýst inní þá og útúr þeim að vild einsog þú eigir þá, hlustaðu á mig, Magga Seinna í ljóðinu („Til þín sem mig dreymir daginn útoginn í kvöld“) íklæðir hann Möggu fyrirbærum og myndlíkingum úr náttúrunni svo hún verður eitt með henni. Magga, steyptu yfir þig misturskirtli og snaraðu móðusjali um herðar þér, knýttu þokutraf um mittið og settu upp huliðshjálm: skuplu úr dalalæðuslæðu, komdu svo gángandi hingað í einum grænum á skóm úr góðviðrisbólstrum og kysstu mig. Ég man þegar hún Magga kom inn á Mokkakaffi til að sækja sinn mann sem sat þar löngum stundum og talaði. Þetta var upp úr 1970. Hún kom hljóðlega inn og stóð kyrr nokkra stund á meðan Dagur var að ljúka við sínar löngu og stóru setningar og standa á fætur. Þau voru miklar and- stæður. Hún var jafnhæglát og hann var hávær. En ég heyrði frá þeim sem vöndu komur sínar heim til þeirra á Miklubrautina að Magga væri engan veginn skoðanalaus kona en héldi fram ýmsu jafneinarðlega og Dagur. Ég virti hana fyrir mér, þetta var ung kona og samt orðin margra barna móðir, og ég gat áreiðanlega ekki málað mig í spor hennar. Það var við hana eitthvað bæði stórt og erfitt. En í ljóðunum til Möggu er að finna meiri nánd og tilfinningahita en öllu jafna í ljóðum Dags um konur. Á þeim tíma er fyrstu ljóðabækur Dags koma út er borgin enn dálítið sveitó og ekki búið að afmá til fulls uppruna hennar. Það má enn víða njóta náttúrustemmninga í Reykjavík þrátt fyrir fylgifiska borgarsamfé- lagsins og ört vaxandi tækniheims: ganga út í Örfirisey þegar vorið er á næsta leiti, örlítið hreifur af víni og horfa á sólarlagið - eða „gapa framan í sólina“, eins og Dagur orðar það. Á síðustu dögum Dags var búið að girða fyrir mörg slík afdrep, búið að steypa upp holtin og grasbalana. Borgin umlukti hann sínum kalda steinfaðmi og hann flýði undan stein- runnum atlotum hennar inn á krárnar. Það er sveitamaðurinn í Degi sem heldur fram eftirfarandi um nútíma borgarstúlku 6. áratugarins í Reykjavík í bókinni Hlutabréf í sólarlaginu: 56 TMM 2004 • 2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.