Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 79
Heimur Sigrúnar
unnar hér á landi og teikna í stóra teikniblokk. í lok sögunnar, rétt áður
en Bétveir heldur af stað út í geiminn kemur konan hlaupandi með bók-
ina sem hún er búin að skrifa, söguna um Bétvo, og færir geimverunni.
Nýlega gerði ég óformlega könnun á bókmenntasmekk barna. Ég fékk
krakka á aldrinum 4 til 11 ára til að velja eftirlætisbækurnar sínar. Drauga-
súpan og Drekastappan fengu flest atkvæði allra bóka hjá yngstu börn-
unum en bækurnar um Málfríði gáfu þeim lítið eftir í vinsældum. Hjá
eldri börnunum voru bækurnar um Teit tímaflakkara ofarlega á lista. Þessi
niðurstaða kemur mér ekki á óvart enda er ég alveg sammála krökkunum.
í nærri aldarfjórðung hafa bækur Sigrúnar opnað börnum og öðru barna-
legu fólki leið inn í ótal hugsanablöðrur. Ekki einungis færa þær okkur dá-
samlegar sögur, þær opna líka fyrir hugmyndaflug okkar sjálfra.
Þegar ég var krakki þótti mér gaman að velta fyrir mér möguleikanum
á að undir götuhlemmunum væru og veru krókófílar, þótt ég væri í raun
of gömul til að trúa því. Ævintýri eru ekki sönn vegna þess að þau kenna
okkur að drekar séu til, heldur vegna þess að þau kenna okkur að dreka
megi sigra. Bækur Sigrúnar benda okkur á að við höfum líðan okkar í
hendi okkar. Er nokkur fúrða að krakkar kunni vel að meta svona skemmti-
legar bækur? Niðurdreginn lesandi er umsvifalaust hresstur við með hug-
myndaauðgi og fjöri. Lífið er einfaldlega of stutt til að njóta þess ekki.
Tilvísanir:
1 Bækur Sigrúnar má t.a.m. þekkja á skófatnaði persóna hennar. Frá fyrstu tíð hafa
þær yfirleitt klæðst strigaskóm sem eru reimaðir upp á ökkla.
“ Eins og í sögu, 7. opna. Síður myndabóka eru yfirleitt ótölusettar og því er vísað
til opna.
iö Draugasúpan, 5. opna.
iv Draugasúpan, 15. opna.
v Draugasúpan, 15. opna.
vi Það á þó ekki við um nýlegar námsbækur. í lestrarbókum fyrir yngstu börnin má
víða sjá fólk af öllum gerðum.
v“ í fyrstu bókinni um Hörpu og Hróa er hárið á Hörpu reyndar mun meira en á
Höllu en í þeim nýrri hefur hún farið í klippingu og er orðin mun líkari Höllu.
™ Allt í plati, 7. opna.
“ Draugasúpan, 16. opna.
1 Draugasúpan, 14. opna.
" Skordýraþjónusta Málffíðar, 2. opna.
“ Geimeðlueggin, bls. 76.
™ Teitur í heimi gulu dýranna, bls. 70.
*iv Allt í plati, lokaopnan.
TMM 2004 • 2
77