Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 91

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 91
Mea culpa, mea maxima culpa ... beth Larsson3 eru hins vegar sammála um að hversu mjög sem póst- módernískir fræðimenn hafi ráðist á alla hluta orðins „sjálfs-ævi-saga“ og afbyggt hvern fyrir sig og alla í senn í tuttugu og fimm ár, þá hafi af- leiðingar þess aðeins orðið til að æsa upp í mönnum ævisagnahungrið. Hvers vegna? Er það hreint afturhvarf eins og Engdahl segir? Gratton segir að formgerðarstefnan sem réði ríkjum í Frakklandi frá miðjum sjötta til miðs áttunda áratugarins hafi verið gengin sér til húðar, þörf hafi verið fyrir breytingar og aðgerðir og þær verði að bera uppi af gerendum, „hugveran hafi snúið aftur“, breytt, flóknari, óáreiðanlegri og öðru vísi, en komin sé hún enn á stjá.4 Lisbeth Larsson segir einfaldlega að okkur hafi aldrei tekist að losna við hugveruna, þó að henni sé af- neitað þrisvar hafi það aðeins orðið til að festa hana í sessi. í því sam- bandi má benda á að neitunin er aðferð þeirrar sköpunarsögu sem við ís- lendingar þekkjum best frá Völuspá þar sem heiminum er lýst með því sem hann ekki er: „var-a sandur né sær/né svalar unnir." Lisbeth Larsen rekur umræðuna sem fór fram um dauða hugverunnar á áttunda og níunda áratugnum en sumir fræðimenn hafa ályktað sem svo að ævi- sagnahungrið endurspegli þrá manna eftir samhengi og merkingu í póst- módernískum heimi þar sem bæði stórar og litlar frásagnir eru fallnar. Aðrir eru á andstæðri skoðun og telja að áhuginn á ævisögunni endur- spegli sterka einstaklingshyggju vorra tíma þar sem menn kjósi að trúa að einstaklingurinn en ekki samfélagið leysi vandann.5 Enn aðrir undir- strika eins og Gunnþórunn Guðmundsdóttir að ævisagan er ekkert eitt, hinar ævisögulegu bókmenntagreinar eru margar og margvíslegar. Hún fjallar síðan um sjálfsævisöguna, um afstöðu manna bæði til sinnar per- sónulegu sögu og fortíðar og veruleika yfirleitt, brigðult og óáreiðanlegt minni, notkun og endurnotkun á sagnaminnum og náið samband sjálfs- ævisögunnar og skáldsögunnar.6 Þrjár stjörnur Bækurnar sem hér verður fjallað um eru ævisaga Lindu Pétursdóttur, Linda - Ljós & skuggar, Ruthar Reginalds, Ruth Reginalds, og sjálfs- ævisaga Lindu Vilhjálmsdóttur, Lygasaga. Fleiri ævisögur og sjálfsævi- sögur kvenna komu út fyrir síðustu jól en þessar eru valdar vegna þess hve marga athyglisverða þætti þær eiga sameiginlega. Allar eru aðalper- sónurnar fíklar og hafa notað vímuefni og áfengi sem þær misstu tökin á. Sambýlismenn Lindu P. og Ruthar beittu þær ofbeldi sem braut þær niður og skaddaði sjálfsmynd þeirra. Allar þrjár hafa átt við alvarlegar geðraskanir að stríða. Allar leituðu þær sér hjálpar að lokum og fóru í TMM 2004 • 2 89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.