Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 103

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 103
Menningarvettvangurinn Menningarvettvangurinn Silja Aðalsteinsdóttir Á líðandi stundu Skömmu fyrir páska beið ég eftir strætisvagni á Hlemmi og notaði tímann til að rifja upp ljóðið um tregann eftir Hannes Pétursson, „Hjá fljótinu“ úr fyrstu bók- inni hans. Ég kunni fyrsta hlutann örugglega: Þau stóðu þar sem þaut með björtum lit hið þunga fljót og horfðu í vatnsins strengi og heyrðu að sunnan sumarvinda þyt um síki og engi. Ég var á valdi ljóðsins, stóð við hið þunga fljót með elskendunum, algerlega „absorberuð“, eins og Ólafur Gunnarsson og Einar Kárason, og líka í nokkurri angist af því ég var ekki viss hvort það var kvíðinn eða beygurinn sem gekk hægt um sviðið í næsta erindi. Þá fékk ég harkalegt olnbogaskot og hvæs í eyrað: „Heyrðu! Áttu fimmtíukall?11 Það munaði litlu að ég fengi hjartaslag þegar mér var kippt svona snöggt út úr tíma ljóðsins inn í rauntíma Hlemms. En ég náði mér, lét af hendi klinkið í buddunni og „absorberaðist" á ný. Þá mundi ég hvor það var sem kom: Og armlög þeirra minntu á fyrsta fund þó fölur beygur hægt um sviðið gengi er laut hann höfði og sagði í sama mund: Veistu hvað gleðin tefur tæpa stund en treginn lengi. Þegar ég las grein Berglindar Gunnarsdóttur hér í heftinu um ljóðagerð Dags Sigurðarsonar áttaði ég mig á hvað hafði gerst. Ég hafði raunverulega verið stödd í annarri vídd, í hinum „fantastíska“ tíma ljóðsins, eins og hún segir. Von að mér yrði illa við, en þetta var lærdómsríkt. Það gleður mig ósegjanlega að hafa fengið ljóð eftir Hannes Pétursson til birt- ingar í þessu hefti. í ár er einmitt hálf öld síðan „Hjá fljótinu“ birtist fyrst í Tíma- riti Máls og menningar, en í því riti hafði hann birt fyrst ljóð aðeins tvítugur að aldri, árið 1951. TMM 2004 • 2 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.