Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 104

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 104
Menningarvettvangurinn Saknað íslenskar bókmenntir hafa misst tvo ómissandi liðsmenn á árinu þótt enn sé það ekki hálfnað þegar þetta er skrifað. Annar þeirra er Svava Jakobsdóttir sem lést 21. febrúar sl. á 74. aldursári (f. 4. október 1930). Hún kom sem endur- nýjandi kraftur inn í íslenskar lausamálsbókmenntir strax með sinni fyrstu bók, Tólfkonum (1965). Stíll hennar var nýstárlegur, frásagnarhátturinn vekjandi og efnið ögrandi, og átti þó allt þetta eftir að þróast hratt í óvæntar áttir á næstu árum. Það var ómetanlegt fyrir ungar hugsandi konur hér á landi á hinum róttæka áttunda áratug aldarinnar tuttugustu að fá málpípu eins og Svövu, og sennilega í eina skiptið á ævinni sem þeim hópi fannst hann „eiga“ rithöfúnd, eiga sitt eigið skáld. Hugmyndaríkan snilling sem talaði til okkar sérstaklega og persónu- lega þannig að við urðum sjálfar merkilegar persónur. Lesturinn á smásagna- safninu Veislu undir grjótvegg, sem út kom 1967, er ógleymanlegur; kannski var það sú bók sem hafði mest áhrif á okkur, ungu konurnar í rauðu sokkunum sem litum upp til Svövu eins og hofgyðju. Loforðin sem sú bók gaf voru svo uppfyllt með Gunnlaðar sögu (1987) þar sem hún tengir skáldskapinn á sannfærandi hátt við kvenkynið og kveneðlið þótt honum hafi í öndverðu verið rænt af okkur. Það verk Svövu sem hefur óvæntasta skírskotun til samtímans á 21. öldinni er þó Leigjandinn (1969), ekki síst endirinn, en magnað myndmál hans má meðal annars lesa sem máttleysi hinna auðugu Vesturlanda gagnvart örbirgð þriðja heimsins. Snilld Svövu sem höfundar náði hæst í smásögunum - í Tólf konum, Veislunni, Gefið hvort öðru (1982) og Undir eldfjalli (1989). Meðal þeirra eru sögur sem á táknrænan hátt sýndu hlutskipti kvenna þannig að ekki varð undan því vikist að skilja. Mér er minnisstætt þegar kvennablaðið Hrund frumbirti Sögu handa börnum árið 1967. Ég var blaðamaður þar þá og fullyrði að það hafi allt orðið vitlaust. Síminn þagnaði ekki í marga daga og fólk var ævareitt. Einkum konur. „Ég las þessa sögu fyrir börnin mín,“ sagði ein, „af því hún heitir Saga handa börnum, og ég varð að hætta í miðju kafi, hún er ógeðslegl “ Það er líka alveg rétt, en sönn er hún á táknmáli sínu. Má ekki sannari vera. Svava lifir í verkum sínum og við fögnum því að hafa átt rithöfund á heims- mælikvarða eins og hana. Það verður aldrei metið sem skyldi. Hinn liðsmaðurinn er Matthías Viðar Sæmundsson sem féll frá á besta aldri 3. febrúar. Hann hefði orðið fimmtugur í sumar (f. 23. júní 1954). Matthías var dósent við íslenskuskor heimspekideildar Háskóla íslands, hennar metnaðar- mesti og mikilvirkasti starfsmaður hin síðari ár. Missir nemenda og allra unn- enda frumlegra bókmenntarannsókna er illbætanlegur. Það hafði talast svo til milli okkar Matthíasar að við hann yrði viðtal í þessu hefti Tímaritsins, meðal annars um íslenskar samtímabókmenntir, þróun þeirra og stöðu og kennslu þeirra á háskólastigi. Ég vildi fá að spjalla við hann fyrir fýrsta heffi ársins en hann bað mig að gefa sér næði fram að öðru hefti vegna þess að hann vildi fá að verða hress eftir krabbameinsmeðferð áður en við hitt- 102 TMM 2004 • 2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.