Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Qupperneq 114

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Qupperneq 114
Bókmenntir Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir: Endurfundir við einsemdina Borgir og eyðimerkur eftir Sigurjón Magnússon (Bjartur 2003) og Hótelsumar eftir Gyrði Elíasson (Mál og menning 2003). Kristmann Guðmundsson rithöfundur dvelur, þjakaður af þreytu og áhyggjum, á hóteli í Hveragerði einn vordag árið 1964. Til Hveragerðis hefur hann farið í ráðaleysi mitt í erfiðum réttarhöldum sem standa yfir í Reykjavík, til þess að ná áttum, til þess að komast burt. Bók Sigurjóns Magnússonar Borgir og eyðitnerkurber undirtitilinn „Skáldsaga um Kristmann Guðmundsson“ en byggir á raunverulegum atburðum úr lífi rit- höfundarins. Kristmann stóð á þessum tíma í meiðyrðamáli við Thor Vilhjálms- son, kollega sinn sem hann taldi að hefði í tímaritsgrein í Birtingi vegið að mannorði sínu og starfsheiðri. Skáldskapurinn er fólginn í því að Sigurjón setur sig inn í hugarheim Krist- manns og greinir frá skoðunum hans og tilfinningum, en þar sem kemur að sannreynanlegum atriðum um líf hans og störf styðst höfundurinn við heimildir. Sögutími er einn sólarhringur, en sagan er líka endurlit, þ.e. hugsanir Krist- manns reika fram og aftur um ævina, svo að lesendur séu sæmilega upplýstir um ævi hans og störf og öðlist jafnframt mynd af því hvað hefur rekið hann til Hveragerðis þennan dag. Réttarhöldin eru þungamiðja sögunnar, en smám saman kemur í ljós að þau eru bara toppurinn á ísjakanum og meiðandi grein Thors aðeins dropinn sem fyllti mælinn. Það var ekkert nýtt að vegið væri að mannorði Kristmanns Guð- mundssonar og starfsheiðri. Þegar hann sneri aftur frá Noregi á fjórða ára- tugnum, þar sem hann hafði ungur öðlast umtalsverða frægð sem rithöfundur, snerist almenningsálitið gegn honum eins og mátti merkja af þrálátum gróu- sögum sem um hann gengu. Ekki einungis var hann sagður ljúga til um vel- gengni sína, líka var því haldið fram að hann væri kynferðislega brenglaður og hrottafenginn í samskiptum við konur - vísast til þess að skýra að hann kvænt- ist oftar en venja er til. Að mati Kristmanns voru ástæður söguburðarins að stærstum hluta póli- tískar. Hann var á öndverðum meiði við flesta mennta- og listamenn á þessum árum sem margir höfðu gengist kommúnismanum á hönd. Kristmann talar um „bráðafár kommúnismans“ og starfsbræður hans sem urðu að „blygðunar- lausum æsingalýð“ sem beitti sér fyrir því að breiða út fagnaðarerindið um sælu- ríki öreiganna austur í Rússlandi og eyddi ekki síður púðri í að ófrægja hvern þann sem leyfði sér að vísa blekkingum um það á bug. Sjálfur taldi Kristmann hins vegar að skáld yrðu að vera frjáls og óbundin af hvers kyns pólitískum kreddum og þeim bæri að segja sannleikann um heiminn í því skyni að 112 TMM 2004 • 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.