Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Page 37
Líf að pessu loknu sinn, Pálmi Pálsson yfirkennari, gefið Guðbrandi Jónssyni leyfi til að leita að grunnmúrum gömlu kirkjunnar á Hólum. Matthías benti bisk- upi á rit Guðbrands um Hóladómkirkju og sendi með afrit af kaflanum þar sem uppgreftinum er lýst. Hann upplýsti ennfremur að beinaleif- arnar væru enn þar sem þær hefðu verið látnar þegar Guðbrandur „afhenti mér þær eftir heimkomu mína, nefnilega í kistu einni í Þjóð- minjasafninu, en hafa ekki verið tölusettar meðal þeirra mannabeina- leifa og hluta, er tilheyra því“.17 Ekki gat Matthías staðfest að þetta væru bein Jóns Arasonar né skýrt með hvaða heimild þau hefðu verið grafin upp og flutt til Reykjavíkur. Þegar biskupi bárust gögnin í hendur sendi hann kirkjumálaráðherra afrit af þeim þar sem honum sýndist að kirkju- garðshelgi á Hólum hefði verið freklega rofin aldarfjórðungi fyrr. Vildi hann eiga viðtal við ráðherra um þetta alvarlega mál, „ekki síst þar sem hér er um að ræða líkamsleifar svo stórmerkra manna í sögu þjóðarinn- ar“.18 Ef slíkur fundur fór á annað borð fram er ekki að sjá að hann hafi borið ávöxt. Að minnsta kosti virðist ekkert markvert hafa gerst í mál- inu fyrr en sumarið 1945 þegar Guðbrandur Jónsson sótti beinin í Þjóð- minjasafnið, með vitund þjóðminjavarðar og biskups, og flutti í Krists- kirkju í Landakoti.19 Var þá loksins gert undir þau sómasamlegt skrín og því komið fyrir í skrúðhúsinu. Hvíldu beinin þar næstu ár meðan þjóðin fylgdist með upptöku beina annars þjóðardýrlings, skáldsins Jónasar Hallgrímssonar. 3 Eftir heimsókn mína í British Museum gerði ég tvær árangurslausar til- raunir til að vitja skáldanna sem hvíla í Westminster Abbey. I fyrra skiptið kom ég skömmu eftir lokun á virkum degi, í seinna skiptið var ég á ferðinni á sunnudegi þegar kirkjan er lokuð ferðafólki vegna helgi- halds. Frá London tók ég hraðlestina til Parísar og leitaði þar uppi hið tilkomumikla Panþeonhof. Að þessu sinni bar heimsóknin tilætlaðan árangur þótt ég hefði reyndar afar nauman tíma til að þræða hina ótal- mörgu klefa í kjallara kirkjunnar. Ég verð að viðurkenna að hláturinn kraumaði í brjóstinu allan tímann. Staðurinn kallaði svo eindregið á andakt að viðbrögðin urðu þveröfug. Þarna voru kistur franskra stór- menna sem höfðu verið flutt á þennan stað eftir að hafa hvílt í uppruna- legum gröfum sínum um lengri eða skemmri tíma. Þegar ég kom aftur út undir bert loft rann upp fyrir mér að öll Parísarborg er eins og fram- lenging þessarar byggingar, margflókinn þjóðargrafreitur þar sem göt- ur, stræti og torg eru ekki bara nefnd eftir fyrirfólki heldur eru fæðing- TMM 2005 • 3 35
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.